Search
Close this search box.

Netstjórnun

2 annir
VERÐ

845.000 kr.

UM NÁMIÐ

Námsbrautin er samsett úr námskeiðunum Netkerfi & Öryggi og Cisco CCNA Routing & Switching. Þessi námsbraut er hugsuð fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna með netkerfi, þar á meðal í stærri fyrirtækjum. Nemendur fræðast um, og vinna með, ýmsan netbúnað og læra um algengustu netstaðla en fá einnig ítarlega kennslu um notkun Cisco netbúnaðar en það er algengasti netbúnaður stærri fyrirtækja og Internetþjónustuaðila. Í dag eru netstjórar sérstaklega eftirsóttir á vinnumarkaði.
Námsbrautin hentar þeim sem hafa almenna tölvufærni og áhuga á að starfa við rekstur netkerfa. Námið gerir talsverðar kröfur til nemenda og þurfa þeir að vera tilbúnir að leggja sig fram í náminu til að ná góðum árangri. Þar sem kennslubækur og námsefni er á ensku þurfa nemendur að hafa nokkuð góð tök á ensku, ekki er þó krafist þekkingar á tækniensku. Nemendur þurfa að hafa góða almenna tölvufærni.
Nemendur sem ljúka námsbrautinni og standa sig með prýði eru færir um að starfa við uppsetningu og rekstur netkerfa hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Nemendur hafa þekkingu til að afla sér frekari þekkingar í faginu.
    Eftir námskeiðið eiga nemendur að:

    Þekkja helstu öryggishættur og vita hvernig á að verjast þeim

    Hafa góða þekkingu á hvernig algengustu netkerfi virka og geta leyst úr einföldum vandamálum tengdum þeim

    Kunna að sýsla með Cisco netbúnað og hafa góðan skilning á almennri virkni netbúnaðar, t.d. hvernig leiðum netpakka er stjórnað

    Geta teiknað upp ýmsar tegundir netkerfa

Í hverjum kennslutíma eru fyrirlestrar og einnig er lögð áhersla á skriflegar og verklegar æfingar í lab umhverfi eða á físískum vélbúnaði. Kennari stýrir umræðum um námsefnið ásamt sýnikennslu o.fl. Námsbrautin er samsett úr námsefni frá: Grunnur að Netkerfum: Comptia Network+, Cisco: CCNA Routing & Switching. Auk þess taka nemendur á brautinni þátt í lokaverkefni, sem tekur saman efni annarinnar og er aðeins í boði fyrir þá nemendur sem eru skráðir á námsbraut.
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

SKRÁNING

Netstjórnun – Fjarnám

Hefst: 5. Feb '25
Lýkur: 14. Nov '25
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 845.000 kr.

Netstjórnun – Kvöldnám

Hefst: 6. Feb '25
Lýkur: 14. Nov '25
Dagar: Mánudagar og miðvikudagar kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga 09:00-16:00

Verð: 845.000 kr.