Search
Close this search box.

Framtal og skattskil

VERÐ

69.000 kr.

UM NÁMIÐ

Hagnýtt hjálpargagn við gerð skattframtals og við skattskil sem miðar að því að auka skilning og færni. Fyrir minni fyrirtæki, rekstraraðila og einstaklinga með eigin rekstur. Farið í gegnum helstu skref við útfyllingu og afstemningar á eyðublöðum og rekstrarskýrslum hjá Skattinum.
Um er að ræða netnám, þar sem nemandi hefur aðgengi að öllu námsefni og hagnýtum verkefnum til að leysa. Aðgengi að úrlausnum verkefna fylgir sem þátttakandi getur borið sig saman við eftir að hafa tekist á við verkefnin. Netnám er hagnýt og hagkvæm leið og gerir þátttakandanum kleift að öðlast skilning og færni án beinnar aðkomu umsjónarmanns.

Á námskeiðinu verður farið í gegnum helstu þætti sem snúa að íslensku skattaumhverfi og skattskilum rekstraraðila og einstaklinga með rekstur. Sýnd verða dæmi um gerð skattframtala fyrir einstaklinga, einstaklinga með rekstur og lítil einkahlutafélög.
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur fái góða grunnþekkingu á íslensku skattaumhverfi og nái að bæta færni sína við framtalsgerð og skattskil.
Námskeiðið er rafrænt sjálfsnám og því hægt að sinna því á þeim tíma sem hentar hverjum og einum. Sérlega gagnlegt samhliða skilum á framtali og sköttum. Öll kennslugögn eru aðgengileg á einstaklingabundnu vefsvæði í formi lesefnis og kennslumyndbanda.
    Lota 1 Skattar og skyldur
    Skattkerfið Tekjuskattur Launatengd gjöld Virðisaukaskattur Ársreikningur Gagnaskil og framtalsfrestir

    Lota 2
    Skattframtal einstaklings með rekstur

    Lota 3
    Skattframtal einstaklings

    Lota 4
    Skattframtal rekstraraðila

Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

SKRÁNING

Framtal og skattskil – Sjálfsnám

Verð: 69.000 kr.