Gagnameistari I

Framsetning upplýsinga & skilningur gagna

497.500 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Gagnameistari I er hagnýtt nám fyrir fólk sem vinnur með gögn í daglegu starfi og vill komast lengra en Excel leyfir. Þú lærir að byggja gagnalíkön og skýrslur í Power BI, að leysa verkefni án forritunarkunnáttu með Power Platform og áhersla er að þú lærir líka að nota Claude, eitt af leiðandi gervigreindartólunum, sem hluta af daglegu gagnastarfi.

Claude er ekki sérstakt aukanámskeið heldur fléttað inn í allar fjórar loturnar. Þú notar það til að skrifa og skilja DAX, hreinsa og umbreyta gögnum, skjalfesta gagnalíkön, byggja ferlalausnir og lesa gagnrýnið yfir eigin niðurstöður.

Sjá námsáætlun og nánari námslýsingu undir námsþættir.
Námið hentar stjórnendum, sérfræðingum og öðrum sem vilja dýpri innsýn í gagnavinnu:

– Þeim sem vinna með rekstrar-, sölu- eða fjárhagsgögn og vilja koma þeim í skýrari framsetningu.
– Þeim sem eru komin á endamörk Excel og vilja vita hvað tekur við.
– Þeim sem hafa áhuga á störfum í gagnateymum (Data Analyst, Data Engineer, Data Scientist).
– Þeim sem vilja læra að nota gervigreind faglega í vinnu með gögn. Ekki bara spjalla við hana.

Engin forritunarkunnátta er nauðsynleg. Grunnþekking á Excel og almenn tölvufærni nægja.
Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að:
  • Hafa góðan skilning á gagnalíkönum og skýrslugerð í Power BI Desktop og Power BI Service
  • Geta unnið með DAX-mælingar, tímagreiningu og Row-Level Security
  • Hafa grunnþekkingu á Power Platform og geta nýtt ferlalausnir og sjálfvirkni án forritunar
  • Þekkja ólík gagnasnið, vefþjónustur og gagnagrunna og geta unnið einfaldar T-SQL fyrirspurnir
  • Geta nýtt Claude í gagnavinnu, meðal annars við DAX-aðstoð, skjölun og ferlalausnir
  • Hafa aukið gagnalæsi og geta lagt gagnrýnið mat á notkun gervigreindar með tilliti til takmarkana, öryggis og persónuverndar
Helstu atriði sem farið er yfir:
  • 1 Lota: Power BI – Grunnur
  • 2 Lota: Power Platform
  • 3 Lota: Gögn að upplýsingum
  • 4 Lota: Power BI – Framhald & Samantekt
  • Lokaverkefni
Sjá nánar –> Námsþættir
Sjá nánar –> Kennsluáætlun
Þessi námsleið veitir diplóma svo fremi sem nemendur standist frammistöðumat
Kennslan er áætluð 52,5 kennslustundir (35 klukkustundir) og vinnuframlag nemenda er í kringum 6-10 klukkustundir á viku. Kennt er á hverjum fimmtudegi í 12-14 vikur frá kl. 17:30 til 20:00 eða um það bil í tvær og hálfa klukkustund í senn. Einnig eru settir upp nokkrir verkefnadagar á þriðjudögum eftir þörfum þar sem kennari verður á staðnum til aðstoða við verkefni.

Meðmæli

Frábært nám fyrir byrjendur og lengra komna. Þetta ætti að vera skylda fyrir alla sem eiga tölvu. Ég er mjög ánægður með þessa drengi í kennslunni. Þeir voru svo mannlegir að ég nennti í alvöru að tala við þá og fá aðstoð.

Haraldur Óli Ólafsson, Tæknistjóri hjá Ísorku

Ég valdi Gagnameistarann af því mér fannst námslýsingin góð og mér leist vel á kennarana sem vinna dags daglega með viðfangsefni námsins. Þetta er auðvitað bara ein önn og í raun bara einn áfangi sem snerti á yfirborðið á mörgum atriðum aðallega innan Microsoft heimsins sem er kostur sérstaklega á íslandi þar sem flest fyrirtæki...

Oddur Einarsson, Bcs í Vélaverkfræði, starfar hjá Carbfix

Ég skráði mig í námið til þess að auka þekkingu mína á þeim hugbúnaði sem er notaður í gagnagreiningu og var þá aðallega með augun á PowerBI en ég kynntist gagnagreiningu aðeins í masternáminu mínu í reikningshaldi og endurskoðun og þar kviknaði áhuginn. Fyrir námskeiðið hafði ég grunnþekkingu á SQL og Tableau (annar hugbúnaður í...

Benedikt Arnar Oddson, M.Acc í reikningshaldi og endurskoðun og starfsmaður í ferðaþjónustu hjá GTS ehf.

Í fyrirtækjarekstri í dag nýtum við allskyns kerfi til að einfalda viðskiptavinum og starfsfólki dagleg störf. Afleiðingin er sú að gögn hrannast upp hjá okkur sem flækir orðið afstemmingar og greiningar. Ástæðan fyrir því að ég fór í Gagnameistarann var tvíþættur: Annars vegar að kynna mér þau tæki og tól sem notuð eru í dag...

Agnar Már er framkvæmdastjóri golfklúbbs GKG og situr i stjórn Jónar Transport

Gagnameistari I – Fjarnám

Hefst: 1. Oct '26
Lýkur: 24. Nov '26
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu. Getur unnið með gögn úr eigin umhverfi og einn á einn endurgjöf frá kennara. Endilega kynnið ykkur kennsluáætlun, einstaka kennsludögum getur verið hliðrað út af frídögum eða öðru.

Verð: 497.500 kr.

48.097 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Gagnameistari I – Kvöldnám

Hefst: 1. Oct '26
Lýkur: 24. Nov '26
Kennt fimmtudaga 17:30-21:00. Áætlaðir 4 verkefnatímar á þriðjudögum sama tíma. Endilega kynnið ykkur kennsluáætlun, einstaka kennsludögum getur verið hliðrað út af frídögum eða öðru. Einhverjir kennsludagar gætu hliðrast á vorönn vegna almennra frídaga, en slíkt er unnið í samráði við þátttakendur.

Verð: 497.500 kr.

48.097 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði