Mikilvægi alþjóðlegrar vottunar (certification) hefur aukist síðustu ár og er hún í dag viðurkenndur mælikvarði á getu þjónustu- og hugbúnaðarfyrirtækja. Einnig gera mörg stærri fyrirtæki kröfur um að starfsmenn tölvudeilda öðlist slíka vottun til að tryggja enn betur gæði þeirrar þjónustu sem tölvudeildir veita.
NTV er vottuð prófamiðstöð fyrir alþjóðlegu prófmiðstöðina Person VUE. Í gegnum prófmiðstöðina getur NTV boðið upp á nær öll alþjóðleg próf sem tengjast upplýsingatækni.
Skráning í próf – Próftaki þarf að skrá sig í próf með góðum fyrirvara og eigi síðar en einni viku fyrir prófdag.
Prófdagar – eru að öllu jafna fyrsta miðvikudag hvers mánaðar (Fer eftir aðsókn).
Prófin byrja klukkan 13 og mæta þarf 30 mínútum fyrr.
Skráning fer í síma 544 4500 eða með tölvupósti: prof@ntv.is
Við skráningu þarf að gefa upp nafn próftaka, síma, netfang, fullt heimilisfang og númer prófs.
Staðfestingargjald kr. 5.000 þarf að greiða til að skáning sé gild og er óafturkræft ef viðkomandi mætir ekki í prófið.
Ef próftaki er á vegum fyrirtækis þarf líka að gefa upp nafn, kennitölu og fullt heimilisfang fyrirtækis.
Prófgjald og forföll – Prófgjald er mismunandi eftir prófum og skal staðgreiða það við próftöku. Ef einstaklingur eða fyrirtæki er í föstum viðskiptum við NTV er sendur reikningur að lokum prófs.
Afpanta þarf próf með minnst eins vinnudags fyrirvara. Prófgjald er ekki endurgreitt ef próftaki mætir ekki eða ef afpantað er með minna en eins vinnudags fyrirvara.
Prófadagur fellur niður ef ekki fæst lágmarksskráning, nemendum er tilkynnt með að minnst sólahrings fyrirvara og prófgjald endurgreitt óski nemandi eftir því.