Vinnustofa í bókhaldi

30.000 kr.

Um námið

Allir geta fært bókhaldið sitt að öllu eða einhverju leiti. Við kennum þér að færa bókhald í því bókhaldskerfi sem þú ert að nota eða vilt nota í þínum rekstri. Þú þarft einungis að mæta til okkar með þín bókhaldsgögn og við leiðum þig af stað. Mættu á eina vinnustofu og þú munt öðlast nýja sýn. Hver vinnustofa spannar 3 klukkustundir. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Vinnustofur í boði alla miðvikudaga kl. 16:00-19:00. Líka í boði einkakennsla fyrir þá sem kjósa það, bæði í staðar- og fjarkennslu.

Við kennum á Uniconta, DK, Payday og Reglu. Þú getur fengið aðgang að bókhaldskerfi en þarft að koma með þín gögn.
Hugsað fyrir þá sem eru með eigin rekstur og/eða eru að færa bókhald.
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
  • Þekkja betur eigið bókhaldskerfi
  • Aukið sjálfstraust við bókhaldsvinnuna

Meðmæli

Ég skráði mig í nám hjá NTV til að læra bókhald þar sem maðurinn minn er að reka eigið fyrirtæki. Markmiðið var að geta séð um bókhaldið sjálf þar sem við þekkjum reksturinn okkar best. Til að ná því markmiði skráði ég mig í þriggja anna bókhaldsnám hjá skólanum og hefur það gefið mér grunnþekkingu...

Stephanie Mauler

Ég hef rekið fyrirtæki í nokkur ár og fannst ég þurfa að dýpka mig betur í bókhaldinu. Fór á Vinnustofu í bókhaldi hjá NTV sem var bæði gagnlegt og skemmtilegt. Öðlaðist meiri skilning og þetta var vel skipulagt. Takk fyrir mig.

Jón Karlsson

Ég er lögmaður og hef verið í sjálfstæðum rekstri í rúmt ár. Ég lét færa bókhaldið fyrir mig en það fór samt töluverður tími í það hjá mér að hafa reiður á gögnum og útskýra fyrir bókaranum hvað ég hafði eiginlega verið að gera. Ég var líka hrædd um að hafa ekki yfirsýn svo ég...

Eva Hauksdóttir

Vinnustofa í bókhaldi

Smelltu á hnappinn til þess að fá nánari upplýsingar s.s. tímasetningar og verð.

Verð: 30.000 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði