Gemini og NotebookLM

9.900 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Google Gemini er öflug gervigreind frá Google sem getur aðstoðað við skrif, hugmyndavinnu, rannsóknir, efnisgerð og úrvinnslu upplýsinga. Á námskeiðinu lærirðu að nýta Gemini á markvissan hátt, skrifa skilvirkar skipanir og vinna með verkfæri á borð við Deep Research, Canvas, Imagen og Veo til að skapa texta, myndir og myndbönd. Einnig kynnist þú NotebookLM, vinnuumhverfi sem byggir á þínum eigin heimildum og gerir þér kleift að greina gögn, draga saman efni, finna lykilatriði og búa til hljóðyfirlit og podcast úr upplýsingum. Að námskeiði loknu hefurðu öðlast hagnýta færni til að nýta gervigreind í vinnu, námi og daglegum verkefnum og vinna hraðar og markvissar með upplýsingar og efnisgerð.
Námskeiðið hentar sérstaklega vel fyrir alla sem vilja skrifa hraðar, þróa hugmyndir, greina upplýsingar og nýta gervigreind í vinnu, námi og daglegum verkefnum með Gemini. Einnig nýtist það vel námsfólki, kennurum og öllum sem vinna mikið með heimildir, glósur og úrvinnslu upplýsinga með NotebookLM.
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
  • Þekkja helstu möguleika Google Gemini og hvernig það nýtist í vinnu og námi.
  • Geta nýtt Gemini til að skrifa, þróa og vinna með texta og upplýsingar.
  • Geta framkvæmt upplýsingaöflun og rannsóknir með Deep Research.
  • Geta búið til myndir og myndbönd með Imagen og Veo.
  • Geta nýtt Canvas til að þróa og betrumbæta efni með aðstoð gervigreindar.
  • Geta hlaðið inn og unnið með eigin heimildir í NotebookLM.
  • Geta dregið saman upplýsingar og fundið lykilatriði í gögnum með NotebookLM.
  • Geta búið til hljóðyfirlit, podcast og aðrar sjálfvirkar samantektir úr eigin efni.
  • Geta nýtt gervigreind á hagnýtan hátt til að auka framleiðni og skilvirkni í starfi.

Gemini og NotebookLM

Heildarlengd: ca. 45 mín.
Gemini 8 þættir
  • 1. Kynning 01:49
  • 2. Hvernig nálgast maður Gemini? 01:29
  • 3. Viðmótið í Gemini 03:15
  • 4. Gemini vs ChatGPT – Hver er munurinn? 03:07
  • 5. Deep research 01:50
  • 6. Canvas 02:55
  • 7. Myndir með Imagen 01:49
  • 8. Myndband með Veo3 02:43
NotebookLM 7 þættir
  • 1. Hvað gerir NotebookLM? 04:20
  • 2. Fyrstu skrefin 06:21
  • 3. Umbreytandi áhrif gervigreindar á skapandi vinnuferla 04:23
  • 4. Gerðu Podcast 03:22
  • 5. Hugarkort og skýrslur 03:11
  • 6. Podcast frá vefsíðu 01:41
  • 7. Í símann 01:46
Þetta námskeið er sjálfsnám þar sem þátttakendur vinna sjálfstætt með námsefnið. Ekki er veitt formleg vottun eða einingar fyrir námsárangur.
Áætlað vinnuframlag er 1–2 klukkustundir. Námið er sjálfsnám og þátttakendur stýra sjálfir hraða og framvindu námsins.

Gemini og NotebookLM – Sjálfsnám

Verð: 9.900 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði