Almenn tölvufærni

Excel, Word, ChatCPT grunnur

54.000 kr.

Um námið

Hagnýtt og vandað sjálfsnám fyrir þá sem hafa áhuga á að bæta við sig almennri tölvuþekkingu og vilja auka við hæfni sína. Markmið námsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu og færni í Word, Excel og Gervigreind ChatGPT grunni. Námið er sjálfsnám þú getur því byrjað strax og þú skráir þig og greiðir. Nemendur hafa aðgang að náminu í 6 mánuði án allrar aðstoðar kennara/leiðbeinanda. Námið er ríkulega búið verkefnum, úrlausnum og íslensk kennslubók á rafrænu formi fylgir með í Word og Excel.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu í tölvuvinnslu sem nýtist jafnt í starfi sem heima og öðlist öryggi og færni í notkun helstu skrifstofuforritanna, Word, Excel og Outlook. Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera færir um að: Í Excel töflureikni að getað sett upp töflur og notað til einfaldra útreikninga. í Word að setja fram á faglegan hátt texta, umsóknir, ritgerðir, myndskreyttar tilkynningar, CV eða hvað annað.
Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir.

Almenn tölvufærni – Sjálfsnám

Verð: 54.000 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði