Adobe Illustrator

Teiknihönnun grunnur

Price range: 99.500 kr. through 214.500 kr.

Um námið

Í Adobe Illustrator eru kennd helstu atriði í vektorvinnslu og notkun teikniverkfæra í einu mest notaða hönnunarforriti í heimi. Í náminu er farið yfir grunnverkfæri forritsins og aðferðir við gerð grafíkar, texta og einfaldra samsetninga fyrir prent og stafræna miðla. Námið er verkefnadrifið og hagnýtt, byggir upp trausta grunnfærni í vektorhönnun og leggur áherslu á verklegar æfingar fremur en próf.
Þetta nám er fyrir þá sem vilja stíga sín fyrstu skref í vektorhönnun og læra að vinna í Adobe Illustrator. Það hentar byrjendum sem vilja hanna grafík, auglýsingar og annað myndefni sem sameinar texta, form og myndir, hvort sem það er fyrir nám, starf eða skapandi verkefni.
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
  • Hafa grunnskilning á vektorvinnslu og muninum á vektor- og punktamyndum.
  • Kunna helstu verkfæri og aðgerðir í Adobe Illustrator.
  • Geta hannað og unnið einfaldan prentgrip sem inniheldur texta, grafík og ljósmyndir.
  • Vera færir um að vinna markvisst og sjálfstætt með vektorhönnun.

Grafísk hönnun í Illustrator

Heildarlengd: 14 klst. 21 mín.
1. hluti: Inngangur 1 klst. 54 mín.
  • 01.01 Preferences (Stillingar) 16:19
  • 01.02 Workspace (Vinnusvæði) 21:15
  • 01.03 New Document (Nýtt skjal) 05:23
  • 01.04 Save (Vista) 04:55
  • 01.05 User Interface (Notendaviðmót) 07:04
  • 01.06 Navigation (Yfirlit) 07:43
  • 01.07 Keyboard Shortcuts (Flýtilyklar) 11:58
  • 01.08 Artboards (Teikniborð) 19:10
  • 01.09 Layers Panel (Lagaspjald) 20:32
2. hluti: Frumteikning 2 klst. 11 mín.
  • 02.01 Formtól — Hluti 1 21:17
  • 02.02 Formtól — Hluti 2 19:37
  • 02.03 Línutólin 17:44
  • 02.04 Bendlarnir 16:04
  • 02.05 Magic Wand og Lasso 11:29
  • 02.06 Pennatólið 25:51
  • 02.07 Curvature tólið 05:35
  • 02.08 Dropateljarinn + Arrange 13:23
3. hluti: Transform + Align + Distribute 1 klst. 10 mín.
  • 03.01 Rotate + Scale 17:02
  • 03.02 Reflect + Share 08:06
  • 03.03 Transform Panel 13:15
  • 03.04 Transform Again 10:34
  • 03.05 Align og Distribute 21:58
4. hluti: Textavinnsla 58 mín.
  • 04.01 Textatólin 14:56
  • 04.02 Point Type 04:26
  • 04.03 Area Type 20:33
  • 04.04 Textaflæði og Textabox 18:27
5. hluti: Nokkur áhöld — Tools 2 klst. 52 mín.
  • 05.01 Málningarburstinn + Blobburstinn 17:58
  • 05.02 Shaper Tól + Blýanturinn 10:11
  • 05.03 Strokeleður + Skæri + Hnífur 10:26
  • 05.04 Width og Warp Tól 17:12
  • 05.05 Free Transform og Puppet Warp Tól 22:02
  • 05.06 Mesh Tól og Gradient Mesh 11:36
  • 05.07 Dropateljarinn 10:06
  • 05.08 Blend 15:24
  • 05.09 Symbols 28:10
  • 05.10 Shape Builder 12:22
  • 05.11 Hand + Rotate View + Zoom 09:09
  • 05.12 Draw + Behind + Inside 08:01
6. hluti: Litir — Swatches 1 klst. 18 mín.
  • 06.01 Litir 20:50
  • 06.02 Swatches 12:25
  • 06.03 Gradients 27:15
  • 06.04 Patterns 17:34
7. hluti: Nokkrar Gardínur — Menu 2 klst. 51 mín.
  • 07.01 Menu File Place + Package 18:54
  • 07.02 Menu Object Path 22:00
  • 07.03 Menu Object Repeat 16:18
  • 07.04 Menu Object Interwine 12:01
  • 07.05 Menu Object Envelope Distort 17:29
  • 07.06 Menu Object Live Paint 15:14
  • 07.07 Menu Select Same og Object 10:22
  • 07.08 Menu Effects Distort + Transform 24:37
  • 07.09 Menu Effects Stylize 11:52
  • 07.10 Menu Effects Warp 09:47
  • 07.11 Clipping Mask + Compound Path 12:38
8. hluti: Nokkrar Pallettur — Panels 1 klst. 5 mín.
  • 08.01 Panels Appearance + Graphic Styles 19:04
  • 08.02 Panels Pathfinder Shape Modes 16:30
  • 08.03 Panels Stroke 19:37
  • 08.04 Panels Properties 10:17

Skólinn vottar frammistöðu með prófskírteini að loknu námi.

Sjálfsnám: Þátttakendur vinna sjálfstætt með námsefnið. Ekki er veitt formleg vottun eða einingar fyrir námsárangur.

Áætlað vinnuframlag er 30-45 klukkustundir. Námið er sjálfsnám og þátttakendur stýra sjálfir hraða og framvindu námsins

Adobe Illustrator – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax og þú vinnur einn á móti kennara (ekki í hópi) og hefur mun lengri tíma til að sinna náminu eða 180 daga. Að sama skapi getur þú líka unnið mun hraðar en í staðar- og fjarnáminu þar sem þú fylgir hópi og námsdagskrá.

Verð: 214.500 kr.

20.976 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Adobe Illustrator – Fjarnám

Hefst: 28. Apr '26
Lýkur: 21. May '26

Verð: 169.500 kr.

16.679 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Adobe Illustrator – Sjálfsnám

Þú getur hafið námið strax og hefur allt að 180 daga til að ljúka því. Þú færð aðgang að öllu námsefninu og öllum verkefnum frá fyrsta degi og getur unnið á þínum eigin hraða. Athugið að kennari fylgir ekki námskeiðinu og ekki er veitt viðurkenning eða staðfesting að námi loknu.

Verð: 99.500 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði