Search
Close this search box.

Kerfis- og netstjóri Diplómanám

3 anna braut
VERÐ

1.645.000 kr.

UM NÁMIÐ

Þetta þriggja anna nám kynnir nemendur fyrir flestum þeim verkefnum sem kerfisstjórar þurfa að takast á við í starfi sínu. Námsbrautin Kerfis- og netstjóri diplómanám er ætlað þeim sem hafa áhuga á að starfa við kerfisstjórn og geta stjórnað netþjónum ásamt því að geta sinnt notandaþjónustu. Nemendur læra að vinna með Window útstöðvar ásamt Microsoft 365, unnið með netþjóna (Windows Server) á staðarneti og í skýjaumhverfi. Nemendur læra að skilja og vinna með netkerfi og nemendur fá mikla kennslu í netkerfum og þá sér í lagi að sýsla með Cisco búnað. Námið er sérstaklega yfirgripsmikið og er mikill skortur fólki á vinnumarkaði með þessa fjölbreyttu þekkingu.
Námsbrautin hentar þeim sem hafa almenna tölvufærni og áhuga á að starfa við notendaþjónustu og stýringu á litlum eða meðalstórum staðar tölvukerfum (on-prem), samtengt skýja umhverfi (Hybrid cloud) eða stýrt netkerfum með uppsetningu og stillingum á Cisco netbúnaði. Námið gerir talsverðar kröfur til nemenda og þurfa nemendur að vera tilbúnir að leggja sig fram í náminu til að ná góðum árangri. Þar sem kennslubækur og námsefni er á ensku þurfa nemendur að hafa nokkuð góð tök á ensku, ekki er þó krafist þekkingar á tækniensku. Nemendur þurfa að hafa góða almenna tölvufærni.
Nemendur sem ljúka námsbrautinni og standa sig með prýði eru færir um að starfa á við notandaþjónustu, við kerfisstýringu og netsjórnun. Nemendur hafa þekkingu til að afla sér frekari þekkingar í faginu.
    Eftir námskeiðið eiga nemendur að:

    Hafa þekkingu og skilning á hugbúnaði tölva.

    Hafa þekkingu á hvernig algengustu netkerfi virka og geta leyst úr einföldum vandamálum tengdum þeim.

    Gera sér grein fyrir mikilvægi góðrar skjölunar, hafa skilning á mikilvægi vel skrifaðra verkbeiðna og geta teiknað upp ýmsar tegundir tölvukerfa.

    Kunna að sýsla með Windows stýrikerfi í skýja umhverfi Microsoft (Intune).

    Geta þjónustað notendur í Entra ID skýjaumhverfi Microsoft, þ.m.t. stofnað notendur, hópa, endursett lykilorð og geta sýslað með notendur í notandahópum.

    Geta sett upp og stjórnað Microsoft Azure skýjaumhverfi.

    Geta samtengt staðar tölvukerfi við skýjaumhverfi í Azure.

    Geta þjónustað notendur í Active Directory umhverfi, þ.m.t. stofnað notendur, endursett lykilorð og set notendur í notandahópa.

    Hafa yfirgripsmikla þekkingu á hinum ýmsu Windows Server þjónustum, nemendur geta sett upp og stillt þjónusturnar eftir þörfum.

    Geta sett upp og stjórnað Microsoft 365 skýjaumhverfi.

    Geta samtengt staðar umhverfi (Active Directory) við Microsoft 365 skýjaumhverfi.

    Geta forritað og sjálfvirknivæða kóða með Power Platform.

    Hafa þekkingu á Microsoft Teams stjórnborðs hluta og stýrt innleiðingu á umhverfi.

    Geta sett upp símkerfishluta Microsoft Teams við fjarskiptafyrirtæki.

    Þekkja helstu öryggishættur og vita hvernig á að verjast þeim.

    Hafa hlotið þjálfun, með lokaverkefni, til að skipuleggja tölvukerfi.

    Kunna að sýsla með Cisco netbúnað og hafa góðan skilning á almennri virkni netbúnaðar, t.d. hvernig leiðum netpakka er stjórnað.

Í hverjum kennslutíma eru fyrirlestrar og einnig er lögð áhersla á verklegar æfingar í lab umhverfi. Kennari stýrir umræðum um námsefnið ásamt sýnikennslu o.fl. Námsbrautin er samsett úr námsefni frá: Comptia Network+, Windows Endpoint Administrator MD-102, Microsoft 365 Administrator MS-102, Administering Windows Server Hybrid Core Infrastructure AZ-800, Configure Windows Server Hybrid Advanced Services AZ-801, Microsoft Azure Administrator AZ-104, Microsoft Power Platform App Maker PL-100, Managing Microsoft Teams MS-700, Collaboration Communications System Engineer MS-721, Microsoft Security, Compliance, and Identity Fundamentals SC-900, Microsoft Security Operations Analyst SC-200, Cisco CCNA 200-301. Auk þess taka nemendur á brautinni þátt í lokaverkefni, sem tekur saman efni annarinnar og er aðeins í boði fyrir þá nemendur sem eru skráðir á námsbraut.
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

SKRÁNING

Kerfis- og netstjóri Diplómanám – Fjarnám

Hefst: 4. Sep '24
Lýkur: 12. Nov '25
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 1.645.000 kr.

Kerfis- og netstjóri Diplómanám – Kvöldnám

Hefst: 4. Sep '24
Lýkur: 12. Nov '25
Kennsla mánudaga miðvikudaga kl. 17:30-21:00 og annan hvern laugardag kl. 09:00-16:00, kennsla víxlast við skiptingu á milli anna yfir á þriðjudaga og fimmtudaga og laugardaga

Verð: 1.645.000 kr.

MEÐMÆLI

Valdi NTV fram yfir háskólanám

Play Video
Valdi NTV fram yfir háskólanám

Valtýr Örn Gunnlaugsson