Excel grunnur

Ítarlegt og hlaðið kennslu- og hjálparefni

34.500 kr.

Um námið

Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra að nota Excel töflureikni til uppsetningar á töflum og til einfaldra útreikninga. Mjög hagnýtt og ítarlegt og ríkulega búið verkefnum og úrlausnum. Íslensk kennslubók fylgir. Námið er sjálfsnám þú getur því byrjað strax og þú skráir þig og greiðir. Þá hefur þú aðgengi í 6 mánuði (180 daga).
Alla sem vilja læra á þetta frábæra verkfæri sem Excel töflureiknir er. Excel er notað á flestum vinnustöðum og getur jafnframt verið mjög gagnlegt í einkalífi við að halda utan um heimilishald, framkvæmdir, ferðalög og fleira.

Að loknu námi eiga þátttakendur að:

  • Þekkja uppbyggingu Excel og helstu verkfæri forritsins.
  • Geta sett upp og unnið með töflureikna.
  • Geta notað SUM fallið og helstu reikniföll Excel.
  • Geta breytt útliti gagna með talnasniðum, letri og öðrum framsetningarverkfærum.
  • Geta afritað, klippt, límt og unnið með gögn á skilvirkan hátt.
  • Skilja muninn á föstum og afstæðum tilvísunum.
  • Geta raðað gögnum og sett þau upp í töfluform.
  • Geta notað skilyrt snið og sérstök talnasnið.
  • Geta útbúið og breytt myndritum í Excel.
  • Vera betur í stakk búin til að nýta Excel við daglega vinnu og einfalda gagnavinnslu.
Excel grunnur 3 klst. 54 mín.

1. Uppbygging, útlit, prentun, afritun og SUM fallið – 1 klst. 34 mín.

  • 1.1 Uppbygging Excel 20 mín.
  • 1.2 Útlitshönnun, SUM fallið og útlit talna 22 mín.
  • 1.3 Útlit talna og prentun 26 mín.
  • 1.4 Afritanir, klippa, afrita og líma 25 mín.

2. Talnasýn, töflur, tilvísanir, röðun og flipar – 1 klst. 10 mín.

  • 2.1 Leturgerðir, stillingar og tölur 16 mín.
  • 2.2 Fastar og afstæðar tilvísanir og heiti hólfa 16 mín.
  • 2.3 Setja inn flipann 23 mín.
  • 2.4 Röðun gagna og töfluform 16 mín.

3. Föll, skilyrði og talnasnið – 53 mín.

  • 3.1 Algengustu reikniföllin 24 mín.
  • 3.2 Föll framhald og skilyrt snið 11 mín.
  • 3.3 Sérstök talnasnið 18 mín.

4. Myndrit og gröf – 56 mín.

  • 4.1 Myndrit fyrsti hluti 16 mín.
  • 4.2 Myndrit útlit hluta 21 mín.
  • 4.3 Myndrit fleiri gerðir 19 mín.
Þetta námskeið er sjálfsnám þar sem þátttakendur vinna sjálfstætt með námsefnið. Ekki er veitt formleg vottun eða einingar fyrir námsárangur.
Áætlað vinnuframlag er 6-8 klukkustundir. Námið er sjálfsnám og þátttakendur stýra sjálfir hraða og framvindu námsins.

Excel grunnur – Sjálfsnám

Verð: 34.500 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði