Tollmiðlaranámskeið

Í samstarfi við Tollskóla ríkisins

299.000 kr.

Um námið

Tollmiðlaranámskeiðið er kennt í samstarfi við Tollskóla ríkisins. Í þessari námsleið er farið yfir helstu atriði er varða inn- og útflutning eins og gerð tollskýrslna, helstu lög og reglugerðir sem gilda um tollmeðferð vara og samskipti við tollyfirvöld. Kennsla fer fram í formi fyrirlestra í rauntíma auk þess vinna þátttakendur verkefni til þjálfunar í einstökum þáttum. Kennsla er í höndum starfandi sérfræðinga hjá Skattinum.
Þessi námsleið er fyrir starfsmenn fyrirtækja sem annast gerð tollskýrslna og sjá um samskipti við tollyfirvöld vegna þeirra. Athygli er vakin á því að starfsmenn tollmiðlara, sem annast gerð tollskýrslna og samskipti við tollyfirvöld vegna þeirra, skulu hafa sótt námskeiðið. Þátttakendur á þessu námskeiði þurfa að hafa góða almenna tölvukunnáttu. Æskilegt er að hafa einhverja grunnþekkingu á tollamálum.
Helstu atriði sem farið er yfir:
  • Lög og reglur um tollmeðferð vöru eins og:
    • Tollflokkun
    • Tollskýrslugerð
    • Meðferð ótollafgreiddra vöru
    • Ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda
    • Upplýsingar til tollyfirvalda
    • Reglur um greiðslufrest aðflutningsgjalda
    • Helstu ákvæði tollalaga nr 88/2005 eins og:
      • starfsemi tollmiðlara
      • vörslu og tollmeðferð vöru (sbr. reglurgerð nr 1100/2006)
     
Þessi námsleið veitir diplóma svo fremi sem nemendur standist frammistöðumat
Námskeiðið er 100 kennslustundir (67 klukkustundir). Miðað er við að mæting sé að lágmarki 90% í öllum námsþáttum til að þátttakendur teljist hafa lokið námskeiðinu.

Tollmiðlaranámskeið – Dagnám

Hefst: 28. Sep '26
Lýkur: 9. Nov '26
Hefst í haust 2026. Ný dagsetning kemur inn síðar. Kennt mánudaga til fimmtudaga frá kl. 12:20-16:00

Verð: 299.000 kr.

29.200 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Tollmiðlaranámskeið – Fjarnám

Hefst: 28. Sep '26
Lýkur: 9. Nov '26
Hefst í haust 2026. Ný dagsetning kemur inn síðar. Kennt mánudaga til fimmtudaga frá kl. 12:20-16:00.

Verð: 299.000 kr.

29.200 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði