Word 365

Ítarlegt sjálfsnám hlaðið kennslu- og hjálparefni

19.500 kr.

Um námið

Word 365 er hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja læra að nýta sér Word til að vinna með skjöl á faglegan og skipulagðan hátt. Farið er yfir helstu verkfæri Word, allt frá grunnatriðum upp í notkun á stílum, efnisyfirlitum, töflum og uppsetningu stærri skjala. Þátttakendur læra meðal annars að vinna með texta, myndir, lista, síðuskipan, dálka, haus og fót og önnur verkfæri sem nýtast við gerð umsókna, ferilskráa, skýrslna, ritgerða og annarra skjala. Námskeiðið inniheldur kennslumyndbönd, verkefni, úrlausnir og íslenska kennslubók á rafrænu formi.
Námskeiðið hentar öllum sem vilja læra að nýta sér Word 365 til að vinna með skjöl á faglegan og skipulagðan hátt. Það hentar jafnt byrjendum sem þeim sem vilja styrkja grunnfærni sína í ritvinnslu. Farið er yfir helstu verkfæri Word sem nýtast við gerð skjala, umsókna, ferilskráa (CV), ritgerða, skýrslna, tilkynninga og annars efnis sem þarf að setja fram á skýran og faglegan hátt.

Að loknu námi eiga þátttakendur að:

  • Þekkja uppbyggingu og helstu aðgerðir í Word 365.
  • Geta unnið með texta, fært hann til, afritað og notað helstu verkfæri til ritvinnslu.
  • Geta leitað að texta, skipt út texta og unnið með leturbreytingar og efnisgreinar.
  • Geta sett inn og unnið með myndir og aðra hluti í skjölum.
  • Geta notað upptalningar, númeraða lista og stigskipta lista.
  • Geta unnið með síðuskil, ramma, skyggingar og forsíður.
  • Geta sett upp og breytt dálkum, hausum, fótum og blaðsíðutali.
  • Geta búið til og unnið með töflur og dálkahök.
  • Geta notað stíla og búið til efnisyfirlit í stærri skjölum.
  • Vera betur í stakk búin til að setja upp fagleg og vel skipulögð skjöl í Word.
Word 365 3 klst. 7 mín.

1. hluti: Fyrstu skrefin, grunnaðgerðir með texta, letur og myndir – 1 klst. 6 mín.

  • 1.1 Word vinnuumhverfið 15 mín.
  • 1.2 Word grunnhugtökin, færa og afrita texta 13 mín.
  • 1.3 Að finna texta, leturbreytingar og efnisgreinar 17 mín.
  • 1.4 Innsetning mynda 12 mín.
  • 1.5 Verkefni 4, 5 og 6 9 mín.

2. hluti: Texta- og leturmeðhöndlun, efnisgreinar, uppröðunarleiðir, innsetning mynda/hluta og síðuuppsetning – 1 klst. 10 mín.

  • 2.1 Nánar um leturbreytingar og efnisgreinar 17 mín.
  • 2.2 Áhersla – tölusett og stigskipt upptalning/listar 12 mín.
  • 2.3 Síðuskil, rammar og skyggingar 14 mín.
  • 2.4 Innsetning hluta og forsíða 18 mín.
  • 2.5 Verkefni 13 og 15 9 mín.

3. hluti: Dálkar, blaðsíðutal, haus/fótur, töflur og dálkahök – 53 mín.

  • 3.1 Dálkar, blaðsíðutal, haus og fótur 18 mín.
  • 3.2 Töflur 17 mín.
  • 3.3 Dálkahök 10 mín.
  • 3.4 Verkefni 20 og 25 8 mín.

4. hluti: Stílar og efnisyfirlit í stærri skjölum, skýrslum og ritgerðum – 18 mín.

  • 4.1 Stílar og efnisyfirlit 18 mín.
Þetta námskeið er sjálfsnám þar sem þátttakendur vinna sjálfstætt með námsefnið. Ekki er veitt formleg vottun eða einingar fyrir námsárangur.
Áætlað vinnuframlag er 4-5 klukkustundir. Námið er sjálfsnám og þátttakendur stýra sjálfir hraða og framvindu námsins.

Word 365 – Sjálfsnám

Verð: 19.500 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði