Sölu- og markaðsnám

Grunnur að árangri

77.000 kr.

Um námið

Þessi námsleið er fyrir þá sem vilja öðlast traustan grunn í sölu, markaðssetningu og samskiptum við viðskiptavini. Námið hentar sérstaklega þeim sem eru að hefja feril í sölu- eða markaðsstörfum eða vilja styrkja sig á þessum sviðum. Námið er ætlað fólki sem er 20 ára eða eldra og hefur stutta formlega skólagöngu að baki. Þessi námsleið er kennd í samstarfi við Mími símenntun og er niðurgreidd af Fræðslusjóði atvinnulífsins.

Sölu- og markaðsnám – Grunnur að árangri er sjálfstæð námsleið en er jafnframt fyrri hlutinn af námsbrautinni Tilheyrir eftirfarandi braut: Sölu, markaðs- og rekstrarbraut sem spannar 2 námsannir.

Nemendur sem vilja bæta við sig hagnýtri þekkingu til að þróa viðskiptahugmynd, stofna fyrirtæki og öðlast innsýn inn í rekstur fyrirtækja geta tekið í beinu framhaldi námsleiðina Rekstrar- og frumkvöðlanám– frá hugmynd til framkvæmdar.

Upptökur af kennslustreymi verða textaðar á íslensku, ensku og pólsku. Nemendur sem hafa íslensku sem annað tungumál fá stuðningsefni.
Sölu- og markaðsnám – Grunnur að árangri NTV og Mímis-símenntunar hentar sérstaklega þeim sem hafa áhuga á að vinna við viðskipta-, sölu- og markaðsmál.
Eftir námið hefur nemandinn öðlast nægjanlega innsýn og færni í viðskipta-, sölu- og markaðsmálum til að undirbúa eigin rekstur eða til að starfa sem sölu- og markaðsfulltrúi stærri fyrirtækja.
Helstu námshlutar sem verður farið í eru:
  • Tölvu- og upplýsingatækni
  • Gerð kynningarefnis
  • Markaðssetning á netinu
  • Almenn markaðsfræði
  • Markaðssetning og samfélagsmiðlar
  • Námsdagbók og markaðssetning
  • Námstækni
  • Framsögn og framkoma
  • Samskipti
  • Sölutækni og viðskiptatengsl
  • Verslunarreikningur
Námsmat á námsleiðinni Sölu og markaðsnám – grunnur að árangri er hannað til að styðja við raunverulega færni og framfarir hvers og eins. Lögð er áhersla á hagnýta verkefnavinnu, leiðsagnarmat og reglulega endurgjöf frá kennurum.
Lokaverkefni staðfestir heildarárangur námsins og styður við faglega þróun. Í lok náms fá nemendur viðurkenningarskjal
Samkvæmt námsskrá, þá er námið um það bil 160 klukkustundir. Námsfrí er alltaf yfir sumarið, jólin og um páska eins og í flestum skólum.
ATH: Mikilvæg ábending fyrir fjarnemendur sem vinna í Mac umhverfi. Námsefni skólans miðast við PC umhverfi í allri Excel kennslu. Það er munur á einstökum aðgerðum á milli Mac og PC, þó hann fari minnkandi. Sá munur liggur aðallega í flýtiaðgerðum á lyklaborðinu. Nemendur í Mac umhverfi verða sjálfir að setja sig inn í þær aðgerðir. Það er í boði fjöldinn allur af hjálparsíðum á netinu sem útskýra þetta sérstaklega.

Sölu- og markaðsnám – Fjarnám

Hefst: 23. Sep '26
Lýkur: 14. Dec '26
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 77.000 kr.

Sölu- og markaðsnám – Kvöldnám

Hefst: 23. Sep '26
Lýkur: 14. Dec '26
Kennsludagar: mánudagar og miðvikudagar kl. 18:00-21:30, auk þess sem nemendur vinna verkefni heima.

Verð: 77.000 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði