Kerfisstjóri Diplómanám

2 anna braut

1.435.500 kr.

Um námið

Kerfisstjóri Diplómanám er tveggja anna nám sem kynnir nemendur fyrir flestum þeim kjarnaverkefnum sem kerfisstjórar þurfa að takast á við í starfi sínu. Kerfisstjóri Diplómanám er ætlað þeim sem hafa áhuga á að starfa við kerfisstjórn og geta stjórnað netþjónum ásamt því að geta sinnt notandaþjónustu sem og rekstri einfaldra netkerfa.

Flestir leiðbeinendur í kerfisstjóranámi hjá NTV Promennt eru Microsoft Certified Trainers (MCT).

Brautin samanstendur af eftirfarandi námsleiðum

Námsbrautin hentar þeim sem hafa almenna tölvufærni og áhuga á að starfa við notendaþjónustu og stýringu á litlum eða meðalstórum staðar tölvukerfum (on-prem) eða samtengt skýja umhverfi (Hybrid cloud). Námið gerir talsverðar kröfur til nemenda og þurfa nemendur að vera tilbúnir að leggja sig fram í náminu til að ná góðum árangri. Þar sem kennslubækur og námsefni er á ensku þurfa nemendur að hafa nokkuð góð tök á ensku, ekki er þó krafist þekkingar á tækniensku.
 loknu námi eiga þáttakendur : 
  • Hafa þekkingu og skilning á hugbúnaði tölva 
  • Hafa þekkingu á hvernig algengustu netkerfi virka og geta leyst úr einföldum vandamálum tengdum þeim 
  • Gera sér grein fyrir mikilvægi góðrar skjölunar, hafa skilning á mikilvægi vel skrifaðra verkbeiðna og geta teiknað upp ýmsar tegundir tölvukerfa 
  • Kunna að sýsla með Windows stýrikerfi í fyrirtækjaumhverfi 
  • Geta sett upp og stjórnað Microsoft Azure skýjaumhverfi 
  • Geta samtengt staðar tölvukerfi við skýjaumhverfi í Azure 
  • Geta þjónustað notendur í Active Directory umhverfi, þ.m.t. stofnað notendur, endursett lykilorð og set notendur í notandahópa 
  • Hafa yfirgripsmikla þekkingu á hinum ýmsu Windows Server þjónustum, nemendur geta sett upp og stillt þjónusturnar eftir þörfum 
  • Geta sett upp og stjórnað Microsoft 365 skýjaumhverfi 
  • Geta samtengt staðar umhverfi (Active Directory) við Microsoft 365 skýjaumhverfi 
  • Geta forritað og sjálfvirknivæða kóða með Power Platform 
  • Kunna að sýsla með Windows stýrikerfi í skýja umhverfi Microsoft (Intune) 
  • Geta þjónustað notendur í Entra ID skýjaumhverfi Microsoft, þ.m.t. stofnað notendur, hópa, endursett lykilorð og geta sýslað með notendur í notandahópum 
  • Hafa þekkingu á Microsoft Teams stjórnborðs hluta og stýrt innleiðingu á umhverfi 
  • Þekkja helstu öryggishættur og vita hvernig á að verjast þeim 
  • Hafa hlotið þjálfun, með lokaverkefni, til að skipuleggja tölvukerfi 
Helstu námshlutar sem verður farið í á námsbrautinni: 
  • Implementing and Managing Windows 11 
  • Comptia Network+ 
  • Microsoft Azure Administrator 
  • Administering Windows Server Hybrid Core Infrastructure 
  • Configure Windows Server Hybrid Advanced Services 
  • Microsoft 365 Administrator 
  • Create and manage canvas apps with Power Apps 
  • Create and manage automated processes by using Power Automate 
  • Create and manage model-driven apps with Power Apps and Dataverse 
  • Microsoft 365 Certified: Endpoint Administrator Associate 
  • Microsoft 365 Certified: Teams Administrator Associate 
  • Microsoft Certified: Security Operations Analyst Associate 
Þessi námsbraut veitir diplóma svo fremi sem nemendur standist frammistöðumat.
Kennslan er áætluð 456 kennslustundir (304 klukkustundir) og vinnuframlag nemenda er í kringum 8-16 klukkustundir á viku.
Advania ætlar að styrkja eina konu til náms hjá NTV skólanum í Kerfisstjórnun Diplómanám.

Í samstarfi við Advania er sérstakt átak í gangi núna til að vekja athygli kvenna á kerfisstjórnun. Mikil eftirspurn er eftir menntuðum kerfisstjórum í atvinnulífinu en hingað til hafa karlar verið í miklum meirihluta þeirra sem sinna starfinu. Advania styrkinn er sem nemur 50% af námskeiðsgjöldum námsbrautarinnar. Áhugasamir einstaklingar eru beðnir um að skrifa um það bil 300-400 orða greinargerð með námsumsókninni um hvers vegna það hafi áhuga á náminu og lýsingu á því hvers vegna það ætti að fá styrkinn. Nauðsynlegt er að taka fram neðst í umsókninni á skráningasíðunni (sem er hér) að sótt sé um Advania-styrkinn undir liðnum Athugasemdir. Greinagerðina skal senda á [email protected].

Meðmæli

Þegar ég var að skoða hvaða námskeið ég ætti að taka hjá NTV þá vakti kerfisstjórnunar námi strax áhuga, ég hafði heyrt aðeins góða hluti um NTV og er ótrúlega ánægður með námið. Þegar ég byrjaði í náminu var tölvuþekking mín engin, en hefur með náminu aukist um helling ásamt því hef ég eignast frábæra...

Kristinn Þór Sigurjónsson

Ég hafði heyrt aðeins góða hluti um NTV og er ótrúlega ánægð með að hafa ákveðið að skella mér í Kerfisstjórnun Diplómanám. Þetta nám hefur verið bæði krefjandi og ótrúlega gefandi – sérstaklega þar sem ég hef verið í 100% vinnu samhliða skólanum. Með góðu skipulagi og frábæru stuðningsneti hefur þetta gengið eins og í...

Sólrún Fönn Þórðardóttir

Ég hef alltaf haft áhuga á tækni og ég þarf að vita hvernig allt virkar. Ég kynntist kerfisstjórnun smá í gegnum fyrri störf og langaði að vita meira. Mig langaði líka til að breyta um stefnu. Ég var rétt búin  að skrá mig í Kerfisstjórnun Diplómanám en ekki byrjuð í náminu þegar ég fékk starfstilboð...

Dagný Eva Magnúsdóttir, kerfisstjóri í User Operation hjá Advania

Kerfisstjórnun Diplómanám hefur skilað sér í miklum starfstækifærum fyrir mig. Ég fékk drauma starfið hjá Origo eftir fyrstu önnina sem sérfræðingur á tækniborði. Það hafði verið draumur í mörg ár að fá að starfa hjá Origo. Ég vinn mikið með Active Directory og sýndarvélar (virtual machines) sem tengist kerfunum hjá viðskiptavinum, Microsoft 365. Ég aðstoða...

Hrönn Dís Ástþórsdóttir Sérfræðingur hjá Origo Ísland

Ég hafði ekki verið í skóla í nokkur ár og var óviss hvað ég vildi þangað til að ég fann kerfisstjórnun hjá NTV. Ég valdi NTV því ég þekki fólk sem lærði þar og meðmælin voru mjög góð. Þar sem kom mér á óvart var hversu skemmtilegt námið var og hversu góðir kennarar voru. Einnig...

Eiður Geir Vilhelmsson, starfar í dag hjá OK sem tæknimaður í fjar- og vettvangsþjónustu. (jan’23)

Valdi NTV fram yfir háskólanám

Valtýr Örn Gunnlaugsson

Kerfisstjóri Diplómanám – Fjarnám

Hefst: 2. Sep '26
Lýkur: 19. May '27
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 1.435.500 kr.

139.305 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Kerfisstjóri Diplómanám – Kvöldnám

Hefst: 2. Sep '26
Lýkur: 19. May '27
Dagar: Mánudagar og miðvikudagar kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga 09:00-16:00

Verð: 1.435.500 kr.

139.305 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði