Search
Close this search box.

Grunnnám í bókhaldi

og Excel
VERÐ

279.000 kr.329.500 kr.

UM NÁMIÐ

Þetta vinsæla nám er fyrir þá sem vilja starfa við bókhald eða fá góðan grunn til frekara náms tengdu bókhaldi. Eftir námskeiðið eiga nemendur að vera færir um að sinna léttum bókhaldsstörfum sem samanstanda af dagbókarfærslum, bankaafstemmningum og virðisaukauppgjöri. Námið byggir á kennslu og verklegum æfingum.

Nemendur fá mikið af hagnýtum verkefnum til að undirbúa þá á sem bestan hátt fyrir starf tengdu bókhaldi. Mikilvægt er að nemendur geri sér grein fyrir að besta leiðin til að læra bókhald er endurtekning og er því mikilvægi heimanáms mikið. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda undir handleiðslu kennara.

Allir námsþættir eru kenndir frá grunni og lýkur þeim með prófi. Athugið framhaldsnámskeiðið "Bókarnám framhald" gæti verið kennt á öðrum dögum en grunnnámið. Bæði fjarnám og staðarnám í boði.
Alla þá sem hafa áhuga á að vinna við bókhald og langar til þess að skilja undirstöðuþætti þess betur. Námið er ætlað fólki sem er 18 ára eða eldra og almenna tölvukunnáttu. 

Til að halda áfram í Bókaranám framhald þarf að ná 7,0 í meðaleinkunn í Grunnnámi í bókhaldi og Excel.
    Fjarnám í frelsi - getur byrjað strax!
    Þú getur skráð þig, greitt og byrjað samstundis. Þú færð tvöfalt lengri tíma (180 daga) til að klára námið en í hefðbundna línulega fjar- eða staðarnáminu eða klárað á styttri tíma. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð. Þú hefur val hvenær þú skilar verkefnum og hvenær þú tekur próf. Námið veitir sama útskriftarskírteini (Diplóma) og hefðbundna námið. Þjónustumarkmið skólans er að þátttakendur fái endurgjöf ekki síðar en inna 7 virkra daga. Endurgjöf á stór skilaverkefni (próf þegar það á við) getur tekið lengri tíma, en þá fá þátttakendur upplýsingar um það. Rauðir dagar telja ekki með, lokað er fyrir slíka endurgjöf yfir jól og páska og yfir miðsumar (1.júlí til 5.ágúst).

    Staðarnám
    Kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu. Kennt á vorönn og haustönn. Tímarammi afmarkaður(upphaf og endir). Ef viðkomandi námslína er í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu líka, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

    Fjarnám
    Kennt samhliða staðarnáminu. Tímarammi afmarkaður(upphaf og endir) og sami hraði á námsyfirferð. Þú hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar þú sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Þú ert hluti af hópi sem fylgist að ásamt leiðbeinenda/-um inn á nemendasvæði og ert með einkasvæði milli þín og kennara. Allt kennsluefni rafrænt. Ef það eru fundir og/eða streymi úr kennslu þá er það allt aðgengilegt á upptökum ef þú tekur ekki þátt í þeim.


    Markmiðið með náminu er að nemendur öðlist góðan skilning á bókhaldi og þjálfist í notkun á Navision tölvubókhaldi. Eftir grunnámið eiga nemendur að hafa öðlast þekkingu og skilning á :
      Helstu þáttum verslunarreiknings

      Grunnaðgerðum í Excel töflureikni

      Grunnþekkingu í dagbókarfærslum og gerð efnahags - og rekstrarreiknings

      Algengustu reglum um virðisaukaskatt ásamt útreikningi

      Notkun tölvubókhaldsforrits, merkingu fylgiskjala

      Skráningum og afstemmingum bankayfirlits

    Námið byggir á kennslu og verklegum æfingum. Nemendur fá mikið af hagnýtum verkefnum til að undirbúa þá á sem bestan hátt fyrir starf tengdu bókhaldi.
    Við viljum benda á að fyrirtæki, stór og smá, leita í auknum mæli eftir starfsfólki úr nemendahópi NTV. Við mælum að sjálfsögðu með okkar góðu nemendum.
    Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
    Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

    1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

    2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]

    3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

    4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

    5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

    Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

    SKRÁNING

    Grunnnám í bókhaldi – Fjarnám í frelsi

    Byrjaðu strax í dag.

    Verð: 329.500 kr.

    Grunnnám í bókhaldi – Fjarnám

    Hefst: 17. Sep '24
    Lýkur: 10. Dec '24
    Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

    Verð: 279.000 kr.

    Grunnnám í bókhaldi – Kvöldnám

    Hefst: 16. Sep '24
    Lýkur: 9. Dec '24
    Kennsla fer fram á mánudögum frá klukkan 18.00-21.30. Kennsluefni og verkefni aðgengilegt í nemendaumhverfi skólans. Námsaðstaða í boði á opnunartíma skrifstofu fyrir þá sem vilja.

    Verð: 279.000 kr.

    Grunnnám í bókhaldi – Morgunnám

    Hefst: 16. Sep '24
    Lýkur: 9. Dec '24
    Kennsla fer fram á mánudögum frá klukkan 8.30-12.00. Kennsluefni og verkefni aðgengilegt í nemendaumhverfi skólans. Námsaðstaða í boði á opnunartíma skrifstofu fyrir þá sem vilja.

    Verð: 279.000 kr.

    MEÐMÆLI

    Atvinnumöguleikarnir aukist til muna

    Helsta ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrá mig í nám hjá NTV skólanum var sú að ég stóð fyrir framan miklar breytingar í...

    Kristján Jóhannes Pétursson

    Allir sem ég talaði við nefndu NTV skólann – opnaði helling af atvinnumöguleikum

    Ég skráði mig í fjarnám í bókhaldi. Ég hafði unnið voða lítið við bókhald en fann að það var starf sem ég gæti vel hugsað mér. Ég var búin að skoða þó nokkra möguleika varðandi...

    Jóhanna Harðardóttir