Gagnameistarinn 1. önn

VERÐ

395.000 kr.

UM NÁMIÐ

GAGNAMEISTARINN – GAGNAGREINING OG STJÓRNENDAUPPLÝSINGAR. (Grunnur að gagnavísindum/Data Science) – Bæði staðar- og fjarnám. Einstaklega hagnýtt og verkefnadrifið nám þar sem þú lærir að gera og tengja við eigin áskoranir í núverandi starfi eða sem undirbúningur fyrir skref annað í starfi. Þátttakendur öðlast hagnýta sýn og færni á sviði gagnavinnslu, greininga og stjórnendaupplýsinga. Gagnameistarinn er kenndur af teymi mjög reyndra ráðgjafa (sjá neðar).
Sérlega spennandi fyrir fólk sem þekkir til fjármála- og rekstrarupplýsinga eða gagnaumhverfis fyrirtækja og stofnana. Margir koma í námið til að nýta sér það beint í umbreytingar og þróun í eigin starfsumhverfi. Algengt er að þátttakendur vinna með eigin gögn og verkefni sem tengist þeirra starfi og/eða áhuga. En slíkt þarf auðvita að rúmast innan námskeiðslýsingar og tímaramma og vera samþykkt af leiðbeinendum.
Helstu markmið:
GRUNNNÁM Í GAGNAGREININGU OG STJÓRNENDAUPPLÝSINGUM. Áhersla á gagnainnlestur, gagnagreiningu og stjórnendaupplýsingar. Kennslan byggist að mestu á að kennari fer í gegnum ákveðið upplegg (oftast 30-60 mín.) og svo vinna þátttakendur í verkefnum með aðstoð kennara. Þátttakendur fá síðan 4 heimaverkefni sem þeim gefst kostur á að vinna og við það aðstoð og að sjálfsögðu endurgjöf og frammistöðumat fyrir þá sem það vilja. Þar af er lokaverkefni sem tekur á öllum þáttum námsins.

Helstu námsþættir eru útlistaðir hér að neðan, en leiðbeinendur áskilja sér allan rétt til að hliðra einhverjum þáttum til og koma inn með nýja þætti ef þróun og markaðsaðstæður gefa tilefni til.
Krefjandi og verkefnamiðað nám, unnið í samstarfi við öflugan ráðgjafahóp. Nemendur sem kjósa að fá diplóma með einkunnagjöf/frammistöðu verða að skila verkefnum.
Diplóma að loknum 1. hluta: Grunnnám í gagnagreiningu og stjórnendaupplýsingum. Frammistöðumat byggir alfarið á verkefnaskilum og umsögn.
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á hrund@ntv.is

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér
Almennt um námið
GAGNAMEISTARINN - GAGNAGREINING OG STJÓRNENDAUPPLÝSINGAR. (Grunnur að gagnavísindum/Data Science) - Bæði staðar- og fjarnám. Einstaklega hagnýtt og verkefnadrifið nám þar sem þú lærir að gera og tengja við eigin áskoranir í núverandi starfi eða sem undirbúningur fyrir skref annað í starfi. Þátttakendur öðlast hagnýta sýn og færni á sviði gagnavinnslu, greininga og stjórnendaupplýsinga. Gagnameistarinn er kenndur af teymi mjög reyndra ráðgjafa (sjá neðar).
Fyrir hverja
Sérlega spennandi fyrir fólk sem þekkir til fjármála- og rekstrarupplýsinga eða gagnaumhverfis fyrirtækja og stofnana. Margir koma í námið til að nýta sér það beint í umbreytingar og þróun í eigin starfsumhverfi. Algengt er að þátttakendur vinna með eigin gögn og verkefni sem tengist þeirra starfi og/eða áhuga. En slíkt þarf auðvita að rúmast innan námskeiðslýsingar og tímaramma og vera samþykkt af leiðbeinendum.
Markmið
Helstu markmið:
    (1) Yfirmarkmiðið er að þeir sem hafa lagt sig fram á fyrstu önninni eiga að geta nýtt sér margvíslega tækni og tól sem bæta yfirsýn og styðja við markvissa og upplýsta ákvarðanatöku.
    (2) Að hafa öðlast haldbæra þekkingu á mismunandi tegundum af gagnalindum, þ.e. gagnagrunnum, gagnalónum o.fl. ásamt því að kunna að sækja, breyta og búa til gögn með notkun SQL fyrirspurnamálsins.
    (3) Að vinna með gögn, auðga þau og setja fram á myndrænan hátt til upplýsinga eða frekari greiningar með Power BI og fleiri tólum ef við á hverju sinni. Sérstök áhersla verður á Power Bi umhverfið þar sem farið verður bæði byrjendanámsefni og framhaldsnámsefni.
    (4) Að skilja og vinna með helstu hugtök, tæki og tól sem notuð eru í dag ásamt því að vinna að raunhæfum verkefnum.
Námsyfirferð og kennsluaðferðir
GRUNNNÁM Í GAGNAGREININGU OG STJÓRNENDAUPPLÝSINGUM. Áhersla á gagnainnlestur, gagnagreiningu og stjórnendaupplýsingar. Kennslan byggist að mestu á að kennari fer í gegnum ákveðið upplegg (oftast 30-60 mín.) og svo vinna þátttakendur í verkefnum með aðstoð kennara. Þátttakendur fá síðan 4 heimaverkefni sem þeim gefst kostur á að vinna og við það aðstoð og að sjálfsögðu endurgjöf og frammistöðumat fyrir þá sem það vilja. Þar af er lokaverkefni sem tekur á öllum þáttum námsins.

Helstu námsþættir eru útlistaðir hér að neðan, en leiðbeinendur áskilja sér allan rétt til að hliðra einhverjum þáttum til og koma inn með nýja þætti ef þróun og markaðsaðstæður gefa tilefni til.
    Kynning
    Fyrsti dagur hefst á kynning á náminu og námsyfirferðinni, straumum og stefnum.

    Power BI, fyrri hluti
    Power Platform Microsoft tekið sérstaklega fyrir
    Power BI, Power Automate og Power Apps
    Samspil við Office365

    Vöruhús gagna
    Uppbygging og viðhald á vöruhúsi gagna, Víddir og mælieiningar

    Gagnalindir og gagnainnlestur
    Gagnalindir (SQL, Skrár, Online, Straumar o.fl)
    Innlestur
    Gagnahreinsun o.fl.
    Power BI og Qlik áhersla

    Gagnamódel
    Vensl og auðgun gagna
    DAX o.fl.
    Power BI og Qlik áhersla

    Myndræn framsetning gagna
    Mismunandi framsetningar á gagnamódelum
    Samnýting/deiling
    Mælaborð o.fl.
    Power BI og Qlik áhersla

    Lokaverkefni
    Lokaverkefni verða sniðin að hverjum og einum nemanda í samráði við leiðbeinendur. Leitast verður eftir því að snerta á sem flestum námsþáttum annarinnar eins og kostur er. Almennt lokaverkefni verður í boði fyrir þá sem kjósa að fá ekki sérsniðið verkefni.

Frammistöðumat / Diplóma
Krefjandi og verkefnamiðað nám, unnið í samstarfi við öflugan ráðgjafahóp. Nemendur sem kjósa að fá diplóma með einkunnagjöf/frammistöðu verða að skila verkefnum.
Diplóma að loknum 1. hluta: Grunnnám í gagnagreiningu og stjórnendaupplýsingum. Frammistöðumat byggir alfarið á verkefnaskilum og umsögn.
Áætlað vinnuframlag
Áætlað er að hver nemandi þurfi að verja að meðaltali 6-10 klukkustundum á viku í til að sinna námsleiðinni vel (umþb +/- 95 klst. öll námsleiðin á 12-14 vikum). Það er auðvitað mjög breytilegt eftir einstaklingum og áhuga og metnaði viðkomandi.
Umsjón með náminu
KENNSLA OG UMSJÓN
Gagnameistarinn (Gagnavísindabrautin) er unnin í samstarfi við þaulreynda ráðgjafa á BI sviðinu. Kennarar verða meðal annars:

Bjarki Elías Kristjánsson
Bjarki hefur yfirumsjón með námsbrautinni. Hann er VP, Data and Automation hjá Controlant. var áður hjá Intenta og á þar áður hjá Capacent til 15 ára. Bjarki er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og UCC Írlandi ásamt því að hafa MBA gráðu frá Copenhagen Business School. Bjarki hefur 20 ára reynslu (https://www.linkedin.com/in/bjarkiek/).

Davíð Hallgrímsson
Menntun: Tölvunarfræðingur Frá Háskóla Íslands
Störf: Data Analyst hjá Controlant, starfaði áður sem sérfræðingur í Viðskiptagreiningu hjá Íslandsbanka
Kennir: Power Automate, Power App og fl.
Linkedin: https://www.linkedin.com/in/dav%C3%AD%C3%B0-hallgr%C3%ADmsson-4b049484/

Margrét Björk Svavarsdóttir
Menntun: Margrét er hagfræðingur með M.Sch. í heilsuhagfræði frá Háskóla Íslands.
Störf: Margrét starfar sem Data Analyst hjá Controlant og starfaði áður sem ráðgjafi á sviði viðskiptagreindar og rekstrar.
Kennir: Gagnagreiningu og framsetningu Linkedin: https://www.linkedin.com/in/margr%C3%A9t-bj%C3%B6rk-svavarsd%C3%B3ttir-762a2578/

Óskar Eyþórsson
Menntun: Fjármálaverkfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík
Störf: Technical Lead hjá Controlant og hefur starfað áður á sviði viðskiptagreindar hjá Advania Ísland og 1912 ehf.
Kennir: Data Sources, Data Warehouse o.fl.
Linkedin: https://www.linkedin.com/in/oskareythors/

Greiðslumöguleikar
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á hrund@ntv.is

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

SKRÁNING

Gagnameistarinn 1. önn – Fjarnám

Hefst: 16. Feb '23
Lýkur: 1. Jun '23
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 395.000 kr.

Gagnameistarinn 1. önn – Kvöldnám

Hefst: 16. Feb '23
Lýkur: 1. Jun '23
Kennt fimmtudaga 17:30-21:00. Áætlaðir 4 verkefnatímar á þriðjudögum sama tíma.

Verð: 395.000 kr.

MEÐMÆLI

Kom skemmtilega á óvart hvað það er „auðvelt“ að búa til app í Power Apps og tengja við gagnasöfn og vinna úr.

Ég valdi Gagnameistarann af því mér fannst námslýsingin góð og mér leist vel á kennarana sem vinna dags daglega með viðfangsefni námsins. Þetta er auðvitað...

Oddur Einarsson, Bcs í Vélaverkfræði, starfar hjá Carbfix

Áhugi á gagnagreiningu kviknaði í mastersnámi í reikningshaldi og endurskoðun. Valdi fjarnám og mæli eindregið með.

Ég skráði mig í námið til þess að auka þekkingu mína á þeim hugbúnaði sem er notaður í gagnagreiningu og var þá aðallega með augun...

Benedikt Arnar Oddson, M.Acc í reikningshaldi og endurskoðun og starfsmaður í ferðaþjónustu hjá GTS ehf.

Góð fjárfesting sem nýttist bæði mér og fyrirtækinu

Í fyrirtækjarekstri í dag nýtum við allskyns kerfi til að einfalda viðskiptavinum og starfsfólki dagleg störf. Afleiðingin er sú að gögn hrannast upp hjá okkur sem flækir orðið afstemmingar og greiningar. Ástæðan fyrir því að...

Agnar Már er framkvæmdastjóri golfklúbbs GKG og situr i stjórn Jónar Transport