Launafulltrúinn

Allt um launaútreikninga, launakerfið, kjarasamninga og réttindi

48.500 kr.

Um námið

Námið er sjálfsnám þar sem farið er í gegnum alla helstu grunnþætti sem þarf að kunna skil á og beita við ákvörðun, útreikninga, skilagreinar, réttindi og skyldur tengdum launavinnslu. Námið er gagnlegt þeim sem starfa við launamál eða bera ábyrgð á launavinnslu. Efnið er ítarlegt en jafnframt sett upp á skýran og aðgengilegan hátt þannig að auðvelt er að nýta það sem stuðning og til uppflettingar samhliða launavinnslu. Þátttakendur hafa aðgang að námsefninu í sex mánuði frá skráningu.
Námið er gagnlegt fyrir þá sem starfa við launamál eða bera ábyrgð á launavinnslu og hafa þegar grunnþekkingu á sviðinu. Námið er ekki ætlað þeim sem hafa enga reynslu eða þekkingu á launavinnslu og er ekki til þess fallið að mennta þátttakendur sem launafulltrúa frá grunni.
Markmið námsins er að styrkja þekkingu, auka yfirsýn og styðja við daglega vinnu þeirra sem koma að launavinnslu.
Að loknu námi eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Launaútreikningum, s.s. sjóðsframlögum, skattum, hlunnindum o.fl. 
  • Uppsetningu launamanna í DK launakerfi
  • Réttindum og skyldum samkvæmt kjarasamningum
  • Hvernig best sé að bera sig að við upplýsingaleit við launavinnslu
 

Námið skiptist upp í þrjá hluta:

  • Hluti 1 – Launaútreikningur
  • Hluti 2 – Launakerfi DK
  • Hluti 3 – Réttindi og skyldur samkvæmt kjarasamningum

Launafulltrúinn – Sjálfsnám

Aðgengið þitt opnast sjálfkrafa þegar þú gengur frá greiðslu.

Verð: 48.500 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði