Frír tveggja daga viðburður í samstarfi við LLPA: AI Festival

8. júní, 2026

Hefur þú áhuga á að læra hvernig fyrirtæki og sérfræðingar nýta gervigreind í daglegum rekstri?

Dagana 10.–11. júní stendur LLPA (Leading Learning Partners Association) fyrir AI Festival, frían netviðburð þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynna sér nýjustu strauma, verkfæri og raunveruleg dæmi um notkun gervigreindar. NTV Promennt er stoltur samstarfsaðili viðburðarins og hvetur áhugasama til að skrá sig. Leading Learning Partners Association

Gervigreind í framkvæmd​

Mikið hefur verið rætt um möguleika gervigreindar undanfarin ár, en hjá mörgum vakna enn spurningar um hvernig tæknin nýtist í raunverulegum verkefnum. AI Festival leggur áherslu á hagnýta nálgun þar sem sérfræðingar og fyrirtæki deila reynslu sinni af innleiðingu gervigreindar í starfsemi sína.

Markmiðið er að sýna hvernig gervigreind getur stutt við dagleg störf, aukið framleiðni og skapað ný tækifæri fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Fyrir bæði fagfólk og tæknisérfræðinga

Dagskrá viðburðarins er fjölbreytt og hentar breiðum hópi þátttakenda.

Annars vegar er áhersla á hagnýta notkun gervigreindar fyrir stjórnendur, verkefnastjóra, markaðsfólk og aðra sem vilja nýta AI til að bæta vinnuferla og auka skilvirkni.

Hins vegar eru tæknilegri erindi fyrir forritara, tæknifólk og þá sem vilja kafa dýpra í þróun AI-lausna, sjálfvirknivæðingu og nýjustu verkfærin á sviðinu.

Á dagskránni má meðal annars finna​

  • Microsoft Copilot og notkun þess í daglegum störfum
  • AI Agents og sjálfvirknivæðingu verkefna
  • Gervigreind í markaðssetningu
  • AI í verkefnastjórnun og rekstri
  • Nýjustu þróun í AI lausnum fyrir fyrirtæki
  • Öryggi, persónuvernd og ábyrg notkun gervigreindar

Viðburðurinn hentar bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í gervigreind og þeim sem vilja efla núverandi þekkingu sína.

Skráning​

AI Festival fer fram dagana 10.–11. júní og þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.

Þetta er frábært tækifæri til að fræðast um gervigreind, kynnast nýjum lausnum og heyra frá sérfræðingum sem vinna með tæknina á hverjum degi.

Skráðu þig á AI Festival hér

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði