Advania styrkur til náms í kerfisstjórnun

Advania ætlar að styrkja konu til náms hjá NTV Promennt hvort sem er í Kerfisstjórnun Diplómanám (2 annir) eða Kerfis- og netstjórnun (3 annir). Í samstarfi við Advania er sérstakt átak í gangi núna til að vekja athygli kvenna á kerfisstjórnun. Mikil eftirspurn er eftir menntuðum kerfisstjórum í atvinnulífinu en hingað til hafa karlar verið í miklum meirihluta þeirra sem sinna starfinu. Advania styrkinn er sem nemur 50% af námskeiðsgjöldum námsbrautarinnar. Áhugasamir einstaklingar eru beðnir um að skrifa um það bil 300-400 orða greinargerð með námsumsókninni um hvers vegna það hafi áhuga á náminu og lýsingu á því hvers vegna...