Power Bi – Gagnagreining og framsetning

Gagnagreining og framsetning
VERÐ

99.000 kr.

UM NÁMIÐ

Mikil gróska hefur verið á sviði viðskiptagreindar síðastliðin ár með tilkomu fjölmargra öflugra gagnagreiningar- og framsetningartóla. Flest eiga þau það sameiginlegt að gera notendum kleift að gera öflugar greiningar á margskonar gagnasöfnum á einfaldan og fljótvirkan hátt. Á þessu námskeiði verður farið yfir nýjasta útspil Microsoft í viðskiptagreind sem að margra mati mun leiða þessa þróun á komandi árum og gengur undir nafninu Power BI. Nemendur munu læra að beita Power BI til þess að tengjast við gögn ásamt því að greina og móta gögn til þess að draga fram áhugaverðar hliðar á þeim. Einnig verður þróun gagna skoðuð yfir tíma sem getur leitt til upplýstari ákvarðanatöku. Mælt er með að taka eigin tölvu með í námskeiðið.
Námskeiðið er fyrir sérfræðinga og stjórnendur sem vilja geta gert áhugaverðar greiningar á einfaldan og umfram allt fljótvirkan hátt.
Að námskeiði loknu eiga nemendur að hafa góðan grunn til þess að gera gagnagreiningar út frá margskonar gagnalindum ásamt því að kunna að útbúa skýrslur og mælaborð.
Kennsla fer fram með stuttri kynningu fyrir hvern námsþátt en þar að auki er mikil áhersla lögð á verklegar æfingar. Í grunninn er Power BI skýjaþjónusta með fjölmarga tengimöguleika. Á þessu námskeiði verður áhersla lögð á Power BI Desktop sem er sjálfstæður hugbúnaður sem ætlaður er til gagnagreininga og þróunar á skýrslum sem síðan eru birtar í skýjaþjónustunni ásamt mælaborðum. Hafist verður handa við að tengjast mismunandi gagnalindum þar sem gögnin verða formuð notkunar á síðari stigum. Því næst verður farið í það hvernig hægt er að auðga gögnin með því að bæta við útreiknuðum gildum. Að lokinni gagnavinnslu verður farið yfir framsetningaleiðir með gerð skýrslna og mælaborða. Að auki verður farið yfir það hvernig einfalt er að tengja afraksturinn upp í skýið og deila með öðrum með hefðbundnum vefrápara og/eða í farsíma með viðeigandi “appi”.
    Kynning. Sagan og núverandi staða

      Innlestur og gagnahreinsun

        Venslun og auðgun gagna.

          Framsetning – Skýrslur og mælaborð.

            Dreifing og deiling

              Tengimöguleikar við Excel

                Lifandi gagnalindir

                  Tengimöguleikar - API

                  Engin verkefnaskil eða próf og því ekkert frammistöðumat. Eina staðfesting um þátttöku er greiðslustaðfesting.
                  ATH !! kennt er Föstudaginn 28.mars, þriðjudaginn 1. apríl og föstudaginn 4. apríl.
                  Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
                  Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

                  1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

                  2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]

                  3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

                  4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

                  5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

                  Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

                  SKRÁNING

                  Power Bi – Gagnagreining og framsetning – Dagnám

                  Hefst: 28. Mar '25
                  Lýkur: 4. Apr '25

                  Verð: 99.000 kr.