NTV SKÓLINN

HLÍÐASMÁRA 9 - 201 KÓPAVOGI

544-4500

UM NTV

Saga skólans í stuttu máli

Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn (NTV) hóf starfsemi sína í október 1996. Stofnendur voru bræðurnir Jón Vignir og Sigurður Karlssynir.

Í byrjun var skólinn að Hólshrauni í Hafnarfirði og síðar einnig í Hlíðasmára í Kópavogi. Um mitt ár 2003 var ákvörðun tekin um að færa starfsemi skólans undir eitt þak í Hlíðasmárann og stækka skólann þar um 4 kennslustofur. Í dag eru kennslustofur skólans 7, auk aðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk.

Viðurkenndur fræðsluaðili

NTV er viðurkenndur af Menntamálastofnun sem fræðsluaðili í fullorðinsfræðslu.

Góð reynsla nemenda

NTV hefur ætíð haft það orðspor að vera vinalegur og heimilislegur skóli. Nemendur hafa oft orð á að þeim líði vel í skólanum. Við vitum að flestir okkar nýnemendur koma vegna góðs umtals fyrrverandi nemenda. Í reglulegu kennslumati segjast yfir 90% nemenda mæla með skólanum við þriðja aðila. Við erum meðvituð um þetta og er skólanum mjög mikilvægt að viðhalda því þægilega og persónulega viðmóti sem skólinn er þekktur fyrir.

Opnunartími skrifstofu

Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl. 8.30 – 16.00, nema föstudaga frá kl. 8.30 – 13.00. Utan opnunartíma er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected] og verður þeim svarað fljótt og vel.

Kennitala skólans: 681096-2729
Reikningsnúmer: 0545-26-000044

FRÉTTIR

Óskum öllum nemendum og þátttakendum okkar nær og fjær gleðilegrar hátíðar. Takk fyrir samfylgdina á árinu.

Cyber Security Day – þér er boðið !

Promennt og NTV kynna frítt alþjóðlegt vefnámskeið um netöryggi á vegum Microsoft og LLPA þann 17. Október. Ráðstefnan fer fram...