Þjónusta

Náms- starfsráðgjöf

Í NTV Promennt er starfandi náms – og starfsráðgjafi, sem veitir nemendum skólans stuðning í námi. Hægt er að óska eftir viðtali með því að senda póst á [email protected].

Lenging á próftíma

Nemendur sem óska eftir lengingu á próftíma eru beðnir um að senda póst á [email protected].

Nemandi getur óskað eftir lengingu á próftíma um 30 mínútur falli hann undir einhverjar af eftirfarandi skilgreiningum:

  • Greining frá viðurkenndum sérfræðingi. Greiningu skal skila a.m.k. 3 dögum fyrir fyrsta próf. Aðeins nemendur með greiningu frá viðurkenndum greiningaraðila um einhverfu, asperger, tourette eða sértæka námsörðuleika geta sótt um lengingu á próftíma.
  • Annað tungumál en íslenska sem fyrsta mál
  • Nemandi hefur alist upp erlendis á grunnskólaaldri
  • Tímabundin veikindi eða slys sem valda því að nemandi á erfitt með að taka próf. Slík tilfelli eru metin sérstaklega af skólastjóra/náms – og starfsráðgjafa.

Ferill ágreininga vegna samskipta

Ef nemandi eða nemendur telja á sér brotið, eða ef ágreiningur verður í skólastarfi milli nemenda þá geta þeir leitað til leiðbeinanda, námsráðgjafa eða umsjónaraðila námsleiðar/brautarstjóra, til að fá aðstoð við lausn málsins. Takist ekki að leysa málið skal því vísað til skólastjóra sem leitar frekari leiða til lausnar á málunum.

Leitast skal við að leysa ágreiningsmál á vettvangi skólans. Uni nemandi ekki úrskurði í deilumáli má vísa málinu til stjórnar skólans. Lögð er áhersla á að afgreiða öll deilumál með skjótum og sem farsællegustum hætti.