Sölu, markaðs- og rekstrarbraut er frábær kostur fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna við viðskipta-, sölu- og markaðsmál eða þá sem vilja stofna til eigin reksturs.
Námsbrautin er kennd í samstarfi við Mími — símenntun og niðurgreidd af Fræðslusjóði atvinnulífsins. Upptökur af kennslustreymi verða textaðar á íslensku, ensku og pólsku. Nemendur sem hafa íslensku sem annað tungumál fá stuðningsefni.