Kerfisrekstur í skýi

814.500 kr.

Um námið

Kerfisrekstur í skýi er fyrir alla kerfisstjóra sem hafa áhuga á að efla sig í rekstri og stjórnun skýjaþjónustu Microsoft 365 samhliða staðarumverfum (On-Prem). Námslínan er framhald af kerfisstjórnun grunnur.

Allir leiðbeinendur námsleiðarinnar Kerfisrekstur í Skýi eru Microsoft Certified Trainers (MCT).
Námið hentar núverandi kerfisstjórum sem hafa áhuga á að efla sig og/eða uppfæra þekkingu sína á skýjarekstri með áherslu á Microsoft 365. Þátttakendur þurfa að þekkja a.m.k. grundvallaratriði úr Microsoft Active Directory til að geta fengið sem mest út úr þessum námslhluta.
Að loknu námi eiga þáttakendur að:
  • Geta sett upp og stjórnað Microsoft 365 skýjaumhverfi 
  • Geta samtengt staðar umhverfi (Active Directory) við Microsoft 365 skýjaumhverfi 
  • Geta forritað og sjálfvirknivæða kóða með Power Platform 
  • Kunna að sýsla með Windows stýrikerfi í skýja umhverfi Microsoft (Intune) 
  • Geta þjónustað notendur í Entra ID skýjaumhverfi Microsoft, þ.m.t. stofnað notendur, hópa, endursett lykilorð og geta sýslað með notendur í notandahópum 
  • Hafa þekkingu á Microsoft Teams stjórnborðs hluta og stýrt innleiðingu á umhverfi 
  • Þekkja helstu öryggishættur og vita hvernig á að verjast þeim 
Helstu námshlutar sem verður farið í á námsbrautinni: 
  • Microsoft 365 Administrator 
  • Create and manage canvas apps with Power Apps 
  • Create and manage automated processes by using Power Automate 
  • Create and manage model-driven apps with Power Apps and Dataverse 
  • Microsoft 365 Certified: Endpoint Administrator Associate 
  • Microsoft 365 Certified: Teams Administrator Associate 
  • Microsoft Certified: Security Operations Analyst Associate 
Þessi námsbraut er seinni hluti í Kerfisstjóri diplómanám og er veitt viðurkenning við lok náms.
Kennslan er áætluð 246 kennslustundir (164 klukkustundir) og vinnuframlag nemenda er í kringum 8-16 klukkustundir á viku.

Kerfisrekstur í skýi – Fjarnám

Hefst: 14. Jan '26
Lýkur: 5. Jun '26
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu. Kennslunni er streymt beint og síðan upptökur aðgengilegar.

Verð: 814.500 kr.

78.725 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Kerfisrekstur í skýi – Kvöldnám

Hefst: 14. Jan '26
Lýkur: 5. Jun '26
Dagar: Mánudaga og miðvikudaga (kl. 17:30-21:00) og valda laugardaga (kl. 09:00-16:00)

Verð: 814.500 kr.

78.725 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði