Kerfis- og netstjóri Diplómanám

3 anna braut

1.874.500 kr.

Um námið

Kerfis- og netstjóri Diplómanám er þriggja anna námsbraut sem kynnir nemendum fyrir flestum þeim verkefnum sem kerfisstjórar þurfa að takast á við í starfi sínu. Nemendur læra að vinna með Window útstöðvar ásamt Microsoft 365, unnið með netþjóna (Windows Server) á staðarneti og í skýjaumhverfi. Nemendur læra að skilja og vinna með netkerfi og nemendur fá mikla kennslu í netkerfum og þá sér í lagi að sýsla með Cisco búnað.

Flestir leiðbeinendur í kerfisstjóranámi hjá NTV Promennt eru Microsoft Certified Trainers (MCT).

Brautin samanstendur af eftirfarandi námsleiðum

Þessi námsbraut er ætluð þeim sem hafa áhuga á að starfa við kerfisstjórn eða netstjórnun og geta stjórnað netþjónum, flóknari netkerfum ásamt að geta sinnt notandaþjónustu. Námið gerir talsverðar kröfur til nemenda og þurfa nemendur að vera tilbúnir að leggja sig fram í náminu til að ná góðum árangri. Þar sem kennslubækur og námsefni er á ensku þurfa nemendur að hafa nokkuð góð tök á ensku, ekki er þó krafist þekkingar á tækniensku
Að loknu námi eiga þáttakendur að: 
  • Hafa þekkingu og skilning á hugbúnaði tölva 
  • Hafa þekkingu á hvernig algengustu netkerfi virka og geta leyst úr einföldum vandamálum tengdum þeim 
  • Gera sér grein fyrir mikilvægi góðrar skjölunar, hafa skilning á mikilvægi vel skrifaðra verkbeiðna og geta teiknað upp ýmsar tegundir tölvukerfa 
  • Kunna að sýsla með Windows stýrikerfi í fyrirtækjaumhverfi 
  • Geta sett upp og stjórnað Microsoft Azure skýjaumhverfi 
  • Geta samtengt staðar tölvukerfi við skýjaumhverfi í Azure 
  • Geta þjónustað notendur í Active Directory umhverfi, þ.m.t. stofnað notendur, endursett lykilorð og set notendur í notandahópa 
  • Hafa yfirgripsmikla þekkingu á hinum ýmsu Windows Server þjónustum, nemendur geta sett upp og stillt þjónusturnar eftir þörfum 
  • Geta sett upp og stjórnað Microsoft 365 skýjaumhverfi 
  • Geta samtengt staðar umhverfi (Active Directory) við Microsoft 365 skýjaumhverfi 
  • Geta forritað og sjálfvirknivæða kóða með Power Platform 
  • Kunna að sýsla með Windows stýrikerfi í skýja umhverfi Microsoft (Intune) 
  • Geta þjónustað notendur í Entra ID skýjaumhverfi Microsoft, þ.m.t. stofnað notendur, hópa, endursett lykilorð og geta sýslað með notendur í notandahópum 
  • Hafa þekkingu á Microsoft Teams stjórnborðs hluta og stýrt innleiðingu á umhverfi 
  • Þekkja helstu öryggishættur og vita hvernig á að verjast þeim 
  • Hafa hlotið þjálfun, með lokaverkefni, til að skipuleggja tölvukerfi 
  • Kunna að sýsla með Cisco netbúnað og hafa góðan skilning á almennri virkni netbúnaðar, t.d. hvernig leiðum netpakka er stjórnað 
Helstu námshlutar sem verður farið í á námsbrautinni: 
  • Implementing and Managing Windows 11 
  • Comptia Network+ 
  • Microsoft Azure Administrator 
  • Administering Windows Server Hybrid Core Infrastructure 
  • Configure Windows Server Hybrid Advanced Services 
  • Microsoft 365 Administrator 
  • Create and manage canvas apps with Power Apps 
  • Create and manage automated processes by using Power Automate 
  • Create and manage model-driven apps with Power Apps and Dataverse 
  • Microsoft 365 Certified: Endpoint Administrator Associate 
  • Microsoft 365 Certified: Teams Administrator Associate 
  • Microsoft Certified: Security Operations Analyst Associate 
  • Cisco Certified Network Associate 
Þessi námsbraut veitir diplóma svo fremi sem nemendur standist frammistöðum.
Kennslan er áætluð 559 kennslustundir (373 klukkustundir) og vinnuframlag nemenda er í kringum 8-16 klukkustundir á viku.

Meðmæli

Tölvuþekking mín var að mér fannst vera ágæt áður en ég fór í námið, en hún hefur aukist alveg gríðarlega og miklu meira en ég bjóst við eftir þetta nám.

Þorsteinn Rúnar Steinþórsson

Ég get bara sagt góða hluti um Kerfisstjóranámið. Námið er vel upp byggt, aðstaðan frábær og verkefnin hönnuð til að líkja eftir raunverulegum vinnuferlum, verkfangi og kröfum. Ég er í staðnámi en líka gott að geta verið með á teams þegar veður er leiðinlegt og ekki hægt að komast í skólann. Kennararnir eru topp fagmenn,...

Gísli Magnús Torfason

Námið hefur veitt mér góða innsýn inn í þennan heim sem ég mun alltaf búa að. Þetta var skref vel út fyrir þægindarammann en ég mæli með þessu- ekki spurning!

Sigrún Erna Guðjónsdóttir

Valdi NTV fram yfir háskólanám

Valtýr Örn Gunnlaugsson

Kerfis- og netstjóri Diplómanám – Fjarnám

Hefst: 11. Feb '26
Lýkur: 13. May '27
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 1.874.500 kr.

181.755 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Kerfis- og netstjóri Diplómanám – Kvöldnám

Hefst: 11. Feb '26
Lýkur: 13. May '27
Dagar: Mánudagar, miðvikudagar kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga 9:00-16:00

Verð: 1.874.500 kr.

181.755 kr/mán
(m.v. 12 mán)