Þessi námsbraut er ætluð þeim sem hafa áhuga á að starfa við kerfisstjórn eða netstjórnun og geta stjórnað netþjónum, flóknari netkerfum ásamt að geta sinnt notandaþjónustu. Námið gerir talsverðar kröfur til nemenda og þurfa nemendur að vera tilbúnir að leggja sig fram í náminu til að ná góðum árangri. Þar sem kennslubækur og námsefni er á ensku þurfa nemendur að hafa nokkuð góð tök á ensku, ekki er þó krafist þekkingar á tækniensku