Grafík „Smakkið“

145.000 kr.

Um námið

Námskeiðið Grafík—„Smakkið“ er undanfari námskeiðsins Grafík—Grunnur. Það er hugsað fyrir þá sem vilja „smakka“ á námi í Grafískri hönnun, kanna hvort áhugasviðið liggi þar. Það er stutt, hnitmiðað og verkefnadrifið grunnnám í grafískri hönnun, þar sem aðal áherslan er á notkun Adobe-hugbúnaðarins: Photoshop (myndvinnsla/pixlar), InDesign (hönnun og umbrot/samspil texta og annarra grafískra elementa), Illustrator (teikning/vektorar) og Bridge (utanumhald og aðgengi að gögnum). Markmiðið er að nemendur ráði við faglega framsetningu á auglýsinga- og kynningarefni fyrir stafræna miðla og fleira.

Athugið: Áskrift að hugbúnaðinum er ekki innifalin í verði námskeiðsins en skólinn getur haft milligöngu um ársáskrift á öllum Adobe pakkanum á góðu verði: Photoshop, InDesign, Illustrator, Bridge auk fjölda annarra forrita.
Námsleiðin er hugsuð fyrir þá sem vilja „smakka“ á námi í Grafískri hönnun, kanna hvort áhugasviðið liggi þar. Ákveðin undirstaða fyrir þá sem vilja læra að hanna auglýsinga- og kynningarefni hvort sem er fyrir netið eða prent. Einnig þá sem stefna á frekara listnám eða háskólanám í grafískri hönnun.

Að loknu námi eiga þátttakendur að:

  • Hafa góða grunnfærni í forritunum.
  • Geta nýtt gervigreindina sem hjálpartæki.
  • Geta hannað ýmis konar auglýsinga- og kynningarefni.
  • Hafa skilning á verkferlum myndvinnslu, vektora, hönnunar og umbrots.
  • Vera vel undirbúnir fyrir frekara nám eða störf á sviði grafískrar hönnunar.
Tæknilegt:
  • Photoshop – Myndvinnsla/Pixlar
  • InDesign – Hönnun og umbrot/Samspil texta og annarra grafískra elementa
  • Illustrator – Teikning/Vektorar
  • Bridge – Utanumhald og aðgengi að gögnum
  • Gervigreindin í forritunum
Faglegt í Spjalli og fyrirspurnum:
  • Hönnun
  • Merkjahönnun
  • Letur og leturfræði
  • Litir, litafræði og litvinnsla
  • Skipulag, vistun og frágangur
  • Verkefni
Sjá nánar –> Námslýsing – Grafík „Smakkið“
Námið er góður grunnur til að byggja á. Námslínan veitir ekki starfsheitið „grafískur hönnuður“ og veitir engin bein starfsréttindi.
Kennslan er áætluð um 24 klukkustundir (um 36 kennslustundir) en nemendur sem vilja ná mjög góðum tökum á viðfangsefninu og marktækum árangri þurfa klárlega að leggja á sig eitthvað heimanám.

Grafík „Smakkið“ – Fjarnám

Hefst: 19. Mar '26
Lýkur: 11. Apr '26
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 145.000 kr.

14.378 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði