Grafík grunnur

Hagnýtt 8 vikna grunnnám

290.000 kr.

Um námið

Að loknu Grafík „Smakki“ liggur leiðin áfram á námskeiðið Grafk Grunnur sem er sjálfstætt framhald á „Smakkinu“. Það er stutt, hnitmiðað og verkefnadrifið grunnnám í grafískri hönnun, þar sem farið er ítarlegra í notkun Adobe-hugbúnaðarins: Photoshop (myndvinnsla/pixlar), InDesign (hönnun og umbrot/samspil texta og annarra grafískra elementa), Illustrator (teikning/vektorar) og Bridge (utanumhald og aðgengi að gögnum). Markmiðið er að nemendur ráði við faglega framsetningu á auglýsinga- og kynningarefni fyrir stafræna miðla og fleira.

Athugið: Áskrift að hugbúnaðinum er ekki innifalin í verði námskeiðsins en skólinn getur haft milligöngu um ársáskrift á öllum Adobe pakkanum á góðu verði: Photoshop, InDesign, Illustrator, Bridge auk fjölda annarra forrita.
Námsleiðin er fyrir þá sem vilja læra að hanna auglýsinga- og kynningarefni hvort sem er fyrir netið eða prent. Einnig þá sem stefna á frekara listnám eða háskólanám í grafískri hönnun.

Að loknu námi eiga þátttakendur að:

  • Hafa góða grunnfærni í forritunum.

  • Geta hannað ýmis konar auglýsinga- og kynningarefni.

  • Hafa skilning á verkferlum myndvinnslu, vektora, hönnunar og umbrots.

  • Vera vel undirbúnir fyrir frekara nám eða störf á sviði grafískrar hönnunar.

Tæknilegt:

  • Photoshop – Myndvinnsla/Pixlar

  • InDesign – Hönnun og umbrot/Samspil texta og annarra grafískra elementa

  • Illustrator – Teikning/Vektorar

  • Bridge – Utanumhald og aðgengi að gögnum

Faglegt í Spjalli og fyrirspurnum:

  • Hönnun

  • Merkjahönnun

  • Letur og leturfræði

  • Litir, litafræði og litvinnsla

  • Skipulag, vistun og frágangur

  • Lokaverkefni

Námið er góður grunnur til að byggja á. Námslínan veitir ekki starfsheitið „grafískur hönnuður“ og veitir engin bein starfsréttindi.
Kennslan er áætluð um 60 klukkustundir (um 90 kennslustundir) en nemendur sem vilja ná mjög góðum tökum á viðfangsefninu og marktækum árangri þurfa klárlega að leggja á sig eitthvað heimanám.

Grafík grunnur – Fjarnám

Hefst: 12. Mar '26
Lýkur: 16. May '26

Verð: 290.000 kr.

28.233 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Grafík grunnur – Staðnám

Hefst: 12. Mar '26
Lýkur: 16. May '26

Verð: 290.000 kr.

28.233 kr/mán
(m.v. 12 mán)