Hagnýtt hjálpargagn við gerð skattframtala og við skattskil sem miðar að því að auka skilning og færni. Hugsað fyrir minni fyrirtæki, rekstraraðila og einstaklinga með eigin rekstur. Farið í gegnum helstu skref við útfyllingu og afstemmingar á eyðublöðum og rekstrarskýrslum hjá Skattinum.
Stafrænt námskeið er hagnýt og hagkvæm leið sem veitir þér góðar leiðbeiningar og stuðning ef þú ætlar að vinna við framtal einstaklings með rekstur eða lítils fyrirtækis.
Þetta stafræna námskeið er alls ekki ætlað að skapa þér einhverja sérfræðiþekkingu, fyrst og fremst auka færni og yfirsýn og vera gott stuðningstæki. Án efa er þetta gott námskeið fyrir Viðurkennda bókara og fólk sem starfar við bókhald og umframm allt þá sem eru að vinna með eigin framtöl.
Á námskeiðinu verður farið í gegnum helstu þætti sem snúa að íslensku skattaumhverfi og skattskilum rekstraraðila og einstaklinga með rekstur. Sýnd verða dæmi um gerð skattframtala fyrir einstaklinga, einstaklinga með rekstur og lítil einkahlutafélög.