Adobe Illustrator

Teiknihönnun grunnur

Price range: 99.500 kr. through 214.500 kr.

Um námið

Í Adobe Illustrator eru kennd helstu atriði í vektorvinnslu og notkun teikniverkfæra í einu mest notaða hönnunarforriti í heimi. Í náminu er farið yfir grunnverkfæri forritsins og aðferðir við gerð grafíkar, texta og einfaldra samsetninga fyrir prent og stafræna miðla. Námið er verkefnadrifið og hagnýtt, byggir upp trausta grunnfærni í vektorhönnun og leggur áherslu á verklegar æfingar fremur en próf.
Þetta nám er fyrir þá sem vilja stíga sín fyrstu skref í vektorhönnun og læra að vinna í Adobe Illustrator. Það hentar byrjendum sem vilja hanna grafík, auglýsingar og annað myndefni sem sameinar texta, form og myndir, hvort sem það er fyrir nám, starf eða skapandi verkefni.
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
  • Hafa grunnskilning á vektorvinnslu og muninum á vektor- og punktamyndum.
  • Kunna helstu verkfæri og aðgerðir í Adobe Illustrator.
  • Geta hannað og unnið einfaldan prentgrip sem inniheldur texta, grafík og ljósmyndir.
  • Vera færir um að vinna markvisst og sjálfstætt með vektorhönnun.
Helstu atriði sem farið er yfir:
  • Alhliða vektorvinnsla (Þátttakendur læra að nota helstu áhöld, panela, skipanir og valmyndir í forritinu).
  • Bendlar.
  • Kynning = Pixlar & vektorar.
  • Lagskiptingar.
  • Litvinnsla.
  • Stillingar & flýtihnappar.
  • Teikniáhöld.
  • Textavinnsla.
  • Transformation.
  • Vinnuumhverfið.
  • Vistun & frágangur.

Adobe Illustrator – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax og þú vinnur einn á móti kennara (ekki í hópi) og hefur mun lengri tíma til að sinna náminu eða 180 daga. Að sama skapi getur þú líka unnið mun hraðar en í staðar- og fjarnáminu þar sem þú fylgir hópi og námsdagskrá.

Verð: 214.500 kr.

21.069 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Adobe Illustrator – Fjarnám

Hefst: 28. Apr '26
Lýkur: 21. May '26

Verð: 169.500 kr.

16.753 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Adobe Illustrator – Sjálfsnám

Getur byrjað strax og hefur mun lengri tíma til að vinna í námskeiðinu eða 180 daga. Þú ert með aðgengi að öllu námsefninu og öllum verkefnum en ert ekki með kennara.

Verð: 99.500 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði