Greiðsla námskeiðsgjalda

Greiðslumöguleikar

Ganga þarf frá greiðslu áður en nám hefst. Best er að ganga frá greiðslu við skráningu á heimasíðu.

Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

  1. Innlegg í heimabanka NTV Promennt : 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

  2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis. Sendið beiðni á [email protected]

  3. VISA eða MasterCard lán(raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða, allt að kr. 1.500.000-1.990.000 eftir lánshæfismati viðkomandi.

  4. Netgíró https://www.netgiro.is/.Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða+

  5. Pei.ishttp://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

  6. Brúa námslán. Býður uppá námslán til einstaklinga sem ætla að fjárfesta í starfs- og sérfræðimiðuðu námi. Sjá nánar: https://brua.is/
 

Erlendar greiðslur:

IBAN:IS620546260007446810962729

SWIFT: GLITISRE546

 

Staðfestinargjald

Ef greiðsla námskeiðsgjalda er ekki greidd við skráningu er mælst til þess að greitt sé 10% staðfestingargjald. Þeir sem greiða staðfestingargjaldið tryggja sér forgang ef námskeið fyllist. Staðfestingargjaldið er óafturkræft.

 

Almennt um námsgjöld

Við viljum vekja athygli á að nemandi sem hættir í námi eða námsleið, hefur ekki rétt á endurgreiðslu á námskeiðsgjöldum.

Ef nemandi þarf að hætta við þátttöku áður en nám hefst þarf afskráning að berast til skólans á netfangið [email protected] ekki síðar en 7 dögum áður en nám hefst.  Berist afskráning of seint eða ekki látið vita áskilur skólinn sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöldin að fullu.

Námskeiðsgjöld eru ekki endurgreidd. Ef nemandi lendir í veikindum eða missir tök á að sinna námi þá getur viðkomandi sótt um að sækja námið aftur gegn því að greiða aðeins 50% af námsgjöldum innan 18 mánaða.  Það er þó alltaf með fyrirvara um að námsleiðin verði haldin aftur og það sé laust pláss.  Skólinn áskilur sér allan rétt til að vera ekki skuldbundinn slíku.

Við hvetjum þá sem eru að skrá sig á brautir (þ.e. tveggja eða þriggja anna nám), að íhuga að greiða staka námshluta, þ.e. hverja önn fyrir sig, þó það kosti meira.  Á móti er það betri trygging fyrir viðkomandi ef eitthvað kemur uppá og fólk þarf frá að hverfa.  Því námskeiðsgjöldin eru ekki endurgreidd.

 

NÁMSSTYRKIR/FRÆÐSLUSTYRKIR  STÉTTARFÉLAGA

Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms hjá NTV Promennt.  Réttindi hvers og eins eru mjög mismunandi þannig að best er að tala við sinn sjóð eða nálgast upplýsingar um þína stöðu hjá þínum starfsmenntasjóði/stéttarfélagi inná Mínar síður.

Einnig er gott er að kynna sér vel styrki sem starfsmenntasjóðir/stéttarfélög eru að veita fyrirtækjum/félagsmönnum.

Fyrirtæki greiða iðgjald í starfsmenntasjóði og geta sótt um starfsmenntastyrk fyrir sína starfsmenn. Áttin er samstarfsverkefni nokkurra starfsmenntasjóða og þar geta vinnuveitendur sótt um styrk inni á https://attin.is/fyrirtaekjastyrkir/  – óháð starfsmanni.

Hér neðar eru tenglar á vefsíður þar sem nálgast má upplýsingar um styrki. Athugið að listinn er ekki tæmandi. Hafðu samband við þitt stéttarfélag og kannaðu málið.

Áttin (greiðir leið fyrirtækja að umsóknum)Vlf. AkranessEining- Iðja
Vlf. HlífVlf. VestfirðingaVR
VSFKStéttarfélagið SamstaðaEfling – stéttarfélag
Vlf. GrindavíkurVlf. SnæfellingaAFL, starfsgreinafélag
Stéttarfélag VesturlandsAldan – stéttarfélagDrífandi – stéttarfélag
Framsýn – stéttarfélagVlf. SuðurlandsRSÍ

Matvís

Vlf. og sjómannafélag Bolungarvíkur

VMByggiðn
Vinnumálastofnun  

 

VIRK STARFSENDURHÆFING

Virk starfsendurhæfing hefur verið að styrkja sína skjólstæðinga til náms hjá NTV Promennt. Skjólstæðingur Virk talar við sinn ráðgjafa sem hefur svo samband við okkur.

 

Afsláttur til atvinnulausra, öryrkja og ellilífeyrisþega

Öryrkjar og eldri borgarar, sem eru ekki að nýta styrki til námsins, eiga þess kost að fá 7% afslátt af námskeiðum og 5% lengri námsbrautum.

 

STYRKIR VINNUMÁLASTOFNUNAR

Vinnumálastofnun (VMST) niðurgreiðir fyrir atvinnuleitendur sum námskeið hjá NTV Promennt um allt að 75% af námskeiðsverði samkvæmt nánari reglum VMST, þó að hámarki 80.000 kr. á ári. (sjá nánar hér).

 

Endurútgáfa skírteina eða yfirlit yfir sótt námskeið

Ef óskað er eftir endurútgáfu eða yfirliti yfir sótt námskeið hjá NTV Promennt er tekið 3.000 kr. umsýslugjald. Vinsamlegast sendið beiðni í tölvupósti á netfangið [email protected]