Yfirskrift námskeiðsins er: „Umbreytum hugmyndum í aðgerðir með Copilot“ og er hugsað fyrir alla innan fyrirtækis eða skipuheildar sem hafa áhuga að læra undirstöður í Microsoft 365 Copilot til að bæta og auðvelda þeirra daglegu vinnu.
Eitt vinsælasta Copilot námskeið á fyrirtækjamarkaði í dag. Mörg hundruð starfsmenn viðskiptavina okkar hafa setið námskeiðið og gefið því sína bestu einkunn. Hagnýtt og hnitmiðað 2ja klst. námskeið sem fær frábær meðmæli.
Þetta námskeið kennir þátttakendum hvernig á að byrja að nota Microsoft 365 Copilot Chat, semja árangursríkar fyrirspurnir og nýta gervigreindarknúna eiginleika þess til að auka framleiðni, einfalda vinnuferla og vinna saman á öruggan hátt í rauntíma.
Flest fyrirtæki hafa kosið streymi sem námsform, þá geta starfsmenn setið á sinni vinnustöð og í raun hvar sem er. Í streymi getur fólk sent spurningar allan tímann og hjálparkennarar (einn til tveir eftir fjölda þátttakenda) svara. Síðan er opið fyrir spurningar í lokin. Bjóðum líka upp á að koma á vinnustaði eða staðnám í húsakynnum NTV Promennt.