Viðmótshönnun í FIGMA

Fyrir vef og app

165.000 kr.

Um námið

Í Viðmótshönnun í Figma eru kennd helstu atriði í notkun hugbúnaðarins. Námið er ætlað þeim sem vilja öðlast góðan grunn í Figma, hvort sem er fyrir vefsíður eða smáforrit (öpp). Þátttakendur fá traustan grunn í hugbúnaði sem er orðinn staðall í allri vinnu með viðmót og verkferla.
Námið er fyrir þá sem starfa við eða eru að stíga sín fyrstu skref í grafík, forritun eða tengdum verkefnum, svo sem verkefnastjórn og frumkvöðlastarfi. Það hentar einnig þeim sem vilja bæta við sig þekkingu í smáforrita- og vefsíðuvinnu og öðlast traustan grunn í vinnslu og útfærslu á vefum og öppum.
Að loknu námi eiga þáttakendur að:
  • öðlast haldbæra þekkingu á því hvernig á að vinna með hugbúnaðinn í verkefnum eins og vefsíðum og öppum.
  • hafa góðan grunn til að vinna sjálfstætt í Figma til þessa að framleiða og/eða lesa í vandað og notendavænt efni.
Helstu atriði sem verður farið yfir á námskeiðinu:
  • Ítarleg kennsla á Figma hugbúnaðinn.
  • Skjástærðir, aðgengi og stillingar fyrir grind (layout grid).
  • Vinnsla á einföldu smáforriti og vefsíðu sem dæmi.
  • Uppsetning á stílahandbók með litlum stíla „kittum“ fyrir smáforrit og vefsíðu.
  • Gerð prótótýpu í Figma.
  • Lokaverkefnið er einfaldur vefur eða app, þar sem þátttakendur velja sjálfir hvort þeir vilja vinna með vef eða smáforrit sem við munum módela eftir öðrum síðum/öppum sem eru þarna úti.
  • Athugið að námskeiðið er mjög verkefnamiðað og þátttakendur eru í hverju skrefi að vinna verkefni sjálfir til að festa betur í minni það sem þeir eru að læra.
Frammistöðumat/einkunn er gefin fyrir námið sem byggir á verkefnaskilum. Fólki er frjálst að skila verkefnum en án verkefnaskila er ekki hægt að veita viðkomandi frammistöðumat. Þeir sem vinna samviskusamlega og skila verkefnum fá Diplóma frá NTV Promennt með lokaeinkunn.

Viðmótshönnun í FIGMA – Fjarnám

Hefst: 30. Oct '25
Lýkur: 18. Nov '25
Kennslan er í beinu streymi á þriðjudögum og fimmtudögum kl:17:30-21:00 þar sem þú getur tekið þátt. Öll kennslan er líka á upptökum ef þú vilt sinna náminu á öðrum tímum og ef þú missir af kennslutíma.

Verð: 165.000 kr.

16.328 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði