Microsoft AI Skills Fest – þér er boðið !

Lærðu að nýta betur kraft gervigreindarinnar og skráðu þig á Microsoft AI Skills Fest í boði LLPA NTV – Promennt...
Sem hluti af þeirri gæðavinnu sem drifin er áfram af starfsmönnum og leiðbeinendum skólans er gert svokallað sjálfsmat á endurbótum á gæðum í fræðslustarfi. Sjálfsmatið byggir m.a. á greiningu upplýsinga (nemendakannanir, brottfall, gagnrýni o.fl.), fundum og almennum umræðum meðal starfsmanna og kennara. Að sjálfsmatinu koma allir starfsmenn skólans. Umsjón með sjálfsmatinu hefur skrifstofustjóri.
Í samræmi við framhaldsfræðslulögin þá birtir skólinn sjálfsmatsskýrslur opinberlega til að upplýsa um innra gæðamat sitt og áætlanir um umbætur. Smellið hér til að skoða.