„Sjáðu tækifærin til umbóta“

Við settumst niður með Magnúsi Ívari Guðfinnssyni til að ræða Lean Six Sigma vottunina sem nú er í fyrsta skipti í boði á Íslandi í samstarfi við NTV Promennt.

Að sögn Magnús hefur undirbúningur námsins staðið yfir í rúm tvö ár og mikil áhersla verið lögð á að laga efnið að íslenskum veruleika.

„Námsefnið er á íslensku og tekur mið af íslenskum veruleika,“ segir hann.

Lean Six Sigma er alþjóðlega viðurkennd aðferðafræði sem notuð er til að bæta ferla, draga úr sóun og auka skilvirkni innan fyrirtækja og stofnana. Aðferðin er víða notuð erlendis og hefur reynst öflugt verkfæri fyrir fyrirtæki sem vilja ná meiri árangri í rekstri.

Umbætur sem allir geta tekið þátt í

Yfirskrift námsins er „Sjáðu tækifærin til umbóta“ og segir Magnús að markmiðið sé að hjálpa starfsfólki að þróa svokölluð „umbótagleraugu“.

„Við viljum að fólk verði meðvitaðra um sitt umhverfi og sjái hvernig hægt er að bæta verklag, ferla og daglegt starf,“ segir hann.

Að hans mati eiga umbætur ekki eingöngu að vera á ábyrgð stjórnenda eða ráðgjafa.

„Í stað þess að vera með einn ráðgjafa eða sérstaka gæðadeild geta fyrirtæki byggt upp þekkingu innan sinna teyma og fengið miklu meiri kraft í breytingarnar.“

Lean Six Sigma vottunin byggir á beltakerfi sem margir þekkja úr sjálfsvarnaríþróttum.

Nemendur hefja ferðina á hvíta beltinu áður en þeir fara áfram í gula og síðan græna beltið.

„Gula beltið hentar vel fólki sem vinnur í verkefnahópum eða minni umbótaverkefnum, en græna beltið er fyrir þá sem vilja leiða stærri umbótaverkefni og stýra breytingum,“ útskýrir Magnús.

Gæðastjórnun á sterum

Ansi lýsir Lean Six Sigma sem „gæðastjórnun á sterum“ vegna þeirra áhrifa sem aðferðafræðin getur haft á fyrirtæki og rekstur.

Hann segir að vottunin snúist ekki eingöngu um kenningar heldur raunverulegar umbætur sem skila mælanlegum árangri.

Til dæmis þurfi einstaklingur sem tekur græna beltið að vinna verkefni sem sýnir fram á raunverulegan ávinning fyrir starfsemi.

„Það getur verið sparnaður upp á milljónir króna á ári eða aukinn virðisauki fyrir fyrirtækið,“ segir hann.

Mikilvægt í hraðri tækniþróun

Að sögn Magnúsar á Lean Six Sigma sérstaklega vel við í nútímaumhverfi þar sem sjálfvirkni, gagnavinnsla og tæknibreytingar eru orðnar stór hluti af starfsemi fyrirtækja.

„Það skiptir gríðarlega miklu máli að þekkja ferlana og vita hvernig á að bregðast við vandamálum,“ segir hann.

Hann bendir á að starfsfólk sé oft meðvitað um ákveðin vandamál innan vinnustaða en hafi ekki alltaf verkfærin eða aðferðina til að takast á við þau.

Lean Six Sigma hjálpi fólki að greina vandamál, vinna með gögn og innleiða lausnir á skipulagðan hátt.

Gögn og ákvarðanataka

Einn af lykilþáttum Lean Six Sigma er gagnadrifin ákvarðanataka.

„Í dag eru fyrirtæki með miklu betri gögn og upplýsingar en áður. Það gerir okkur kleift að taka betri ákvarðanir og vinna markvissar að umbótum,“ segir Magnús.

Hann telur að samspil gagnagreiningar, sjálfvirkni og Lean Six Sigma muni skipta sífellt meira máli á næstu árum.

Færni sem nýtist í fjölbreyttum störfum

Áhuginn á umbótastjórnun, ferlagreiningu og skilvirkni hefur aukist hratt á síðustu árum. Fyrirtæki og stofnanir leita í auknum mæli að starfsfólki sem getur tekið þátt í breytingum, greint tækifæri og unnið markvisst að umbótum.

Hjá NTV Promennt er lögð áhersla á hagnýtt nám sem tengist raunverulegum áskorunum atvinnulífsins.

Lean Six Sigma vottunin er þróuð með íslenskan vinnumarkað í huga og veitir þátttakendum verkfæri sem nýtast bæði stjórnendum og starfsfólki í fjölbreyttum atvinnugreinum.


Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Magnús Ívar Guðfinnsson um Lean Six Sigma vottunina.

Ef þú hefur áhuga á umbótastjórnun, skilvirkari ferlum og því hvernig fyrirtæki geta aukið árangur með markvissum breytingum getur Lean Six Sigma námið hjá NTV Promennt verið spennandi leið til að þróa nýja færni.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði