Við heimsóttum teymið hjá stefnumótaappinu Smitten þar sem Gunnsteinn Aron, framendaforritari og leiðbeinandi í forritun hjá NTV Promennt til margra ára, tók á móti okkur og sagði frá starfi sínu, áhuga á forritun og því sem gerir fagið svona spennandi.
Gunnsteinn starfar í sprotaumhverfi þar sem hraði, sköpun og stöðugar breytingar eru hluti af daglegu lífi. Að hans mati er það einmitt hluti af því sem gerir forritun svona gefandi.
Frelsið til að skapa
„Það sem ég fíla mest við forritun er frelsið sem þú færð á því að vinna sem forritari,“ segir Gunnsteinn.
Hann bendir á að það þurfi í raun ekki mikið til að byrja að skapa.
„Þú þarft ekki rosalega mikið til þess að geta búið til vörur eins og Facebook eða Instagram. Það er nóg að vera með eina tölvu, skrifborð og kaffibolla – og þú getur búið til hvað sem er.“
Að hans mati er forritun einstök vegna þess að hún sameinar tækni og sköpun. Hún gefur fólki möguleika á að þróa hugmyndir sínar áfram, vinna hvaðan sem er og skapa lausnir sem geta haft áhrif á þúsundir eða jafnvel milljónir notenda.
Daglegt líf í sprotageiranum
Sem framendaforritari hjá Smitten vinnur Gunnsteinn að þróun upplifunar notenda í appinu. Hann segir dagana fjölbreytta en oft hraða.
„Ég kem í vinnuna, næ mér í kaffibolla eða orkudrykk og tek svo fund með teyminu mínu áður en dagurinn byrjar.“
Verkefnin geta verið mjög mismunandi – allt frá því að þróa nýja eiginleika yfir í að laga tæknileg vandamál eða bæta notendaupplifun.
Hann segir mikilvægt að setja sig í spor notandans.
„Maður þarf að skilja hvernig fólk notar vöruna og hvað er hægt að gera betur. Markmiðið er alltaf að búa til betri upplifun fyrir einstaklinginn sem notar appið.“
Í sprotaumhverfi séu breytingar tíðar og pressan stundum meiri en á stærri vinnustöðum, en það fylgi því líka mikil orka og tækifæri til að læra hratt.
Flóknu verkefnin eru skemmtilegust
Þótt starfið geti verið krefjandi segir Gunnsteinn það líka mjög gefandi – sérstaklega þegar hann fær tækifæri til að takast á við flókin verkefni.
„Það sem er skemmtilegast að gera eru flóknu hlutirnir, að læra nýja hluti sem ég hef aldrei snert áður og skilja hvernig þeir virka.“
Hann lýsir því hvernig það geti tekið langan tíma að innleiða ný tæknikerfi eða finna lausnir á erfiðum vandamálum, en þegar allt gangi upp sé tilfinningin einstök.
„Það getur verið rosalega erfitt en líka rosalega rewarding þegar maður fær þetta loksins til að virka.“
Hlutverk gervigreindar í framtíðinni
Gunnsteinn ræddi einnig um þróun tækninnar og áhrif gervigreindar á forritun.
Að hans mati er gervigreind fyrst og fremst nýtt verkfæri sem hjálpar forriturum að vinna hraðar og skilvirkar.
„Það er mikið talað um AI í dag, en ég horfi meira á þetta sem náttúrulega þróun á því hvernig við notum tækni.“
Hann telur því að þörfin fyrir hæft fólk í forritun muni áfram vera mikil, sérstaklega fyrir einstaklinga sem geta hugsað skapandi, leyst vandamál og þróað nýjar lausnir.
Forritun sem opnar dyr
Á síðustu árum hefur eftirspurn eftir fólki með þekkingu á forritun aukist hratt, bæði á Íslandi og erlendis. Forritun er ekki lengur aðeins fyrir tæknifyrirtæki heldur nýtist hún í nánast öllum atvinnugreinum.
Hjá NTV Promennt er lögð áhersla á hagnýtt nám þar sem nemendur vinna með raunveruleg verkefni og öðlast skilning á því hvernig forritun er notuð í atvinnulífinu.
Saga Gunnsteins sýnir vel hvernig forritun getur sameinað sköpun, tækni og lausnamiðaða hugsun – og opnað dyr að fjölbreyttum og spennandi tækifærum.
Hér fyrir neðan má sjá viðtalið við Gunnstein Aron.
Ef þú hefur áhuga á forritun, tæknilausnum og skapandi verkefnum getur nám hjá NTV Promennt verið frábær leið til að byggja upp þekkingu og færni fyrir framtíðina.