Search
Close this search box.

Verkefnastjórnun

á mannamáli
VERÐ

185.000 kr.335.000 kr.

UM NÁMIÐ

Verkefnastjórnun á mannamáli er hagnýt námsleið þar sem fjallað er um málefni verkefnastjórnunar frá a-ö. Námið er einungis í boði í fjarnámi.

Lögð verður áhersla á að veita þátttakendum hagnýtar aðferðir, tól og verkfæri sem geta nýst í almennri stjórnun, skipulagningu og samskiptum innan fyrirtækja sem og í sjálfstæðum verkefnum. Í náminu verður farið yfir grunninn í verkefnastjórnun, leiðtogahæfni og sjálfsþekkingu, árangursríka teymisvinnu, skilgreiningu, skipulag verkefna og samskipti. Nemendur læra að útbúa verkáætlun og fjárhagsáætlun og að framkvæma áhættugreiningu og hagsmunaaðilagreiningu svo eitthvað sé nefnt. Námsleiðin eflir þátttakendur í að stýra verkefnum sem sterkir leiðtogar og að setja af stað, fylgja eftir og ljúka verkefnum svo allir hagsmunaaðilar séu sáttir.

Námsleiðin nýtist sem grunnur fyrir D-vottun í verkefnastjórnun hjá Verkefnastjórnunarfélagi Íslands
Verkefnastjórnun er sífellt mikilvægari þáttur í almennri stjórnun og er aðferðafræði hennar notuð í nánast öllu starfi nú til dags. Því má hagnast verulega á því að kunna aðferðafræði verkefnastjórnunar á vinnumarkaði í dag og geta tól verkefnastjórnunar skapað ákveðið samkeppnisforskot fyrir þá sem kunna að nota þau.

Námskeiðið er ætlað fyrir bæði stjórnendur og einstaklinga sem:

– Vilja efla sig í skipulagningu og yfirsýn verkefna, samskiptum við þverfagleg teymi og utanaðkomandi hagsmunaaðila.

– Þurfa að nota verkefnastjórnun í stínu starfi, þurfa að ná góðri yfirsýn og drífa verkefni áfram af öllum stærðum og gerðum.

– Vilja nýta sér verkfæri og aðferðir verkefnastjórnunar.

– Fyrir þá sem vilja efla sig sem leiðtogar.

– Fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir D-vottun í verkefnastjórnun.
Það sem við viljum að þú fáir út úr námskeiðinu er eftirfarandi:
Fjarnám – 6 vikna lotunám, verkefnaskil og diplóma:

Hver lota er ein vika. Þátttakendur fá allt námsefni og ítarefni í upphafi hverrar lotu ásamt verkefnum til að vinna þegar það á við. Frammistöðumat / einkunn er gefin fyrir námið sem byggir á verkefnaskilum. Fólki er frjálst að skila verkefnum, en án verkefnaskila er ekki hægt að veita viðkomandi frammistöðumat. Þeir sem vinna samviskusamlega og skila verkefnum fá Diplóma frá NTV skólanum með einkunnum.

Verkefni eru að eigin vali og geta verið hluti af raunhæfum verkefnum sem verið er að vinna að eða nemendum langar að vinna að. Eins geta verkefnin verið skálduð eða verkefni sem búið er að framkvæma. Allar verkefnahugmyndir þarf að leggja fyrir kennara í upphafi svo hægt sé að meta hvort þau séu raunhæf vegna t.d. tímalengdar eða umfangs.
Þeir þátttakendur sem vinna vel verkefni fá frammistöðumat frá skólanum en það er auðvitað valfjrálst öllum hvort þeir geri það.
Námsefnið, verkefnin og nemendaumhverfið:

Námsefnið er í formi kennslumyndbanda sem leiðbeinendur og skólinn hafa framleitt, lesefni, ítarefni auk verkefna. Nemendur fá aðgengi að því efni sem tengist hverri lotu við upphaf lotunnar. Aðgengið að námsefninu og samskipti við leiðbeinendur er í gegnum nemendaumhverfi skólans. Hluti af námsefninu getur verið á ensku, þá aðallega ítarefni.
Verkefni geta verið greinargerðir, aðgerðaráætlun, próf/quiz eða hvað sem kennarar í fjarnámi telja að henti best hverju viðfangsefni. Nemendaumhverfi skólans er í gegnum Office 365 umhverfið, þar sem öll miðlun á efni og samskipti eru í Teams, í lokuðum hópi. Á fyrsta degi, þegar námið hefst, fá nemendur sendan aðgang að nemendasvæðinu svo fremi sem þeir hafa gengið frá greiðslum/greiðslusamkomulagi.
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér
Almennt um námið
Verkefnastjórnun á mannamáli er hagnýt námsleið þar sem fjallað er um málefni verkefnastjórnunar frá a-ö. Námið er einungis í boði í fjarnámi.

Lögð verður áhersla á að veita þátttakendum hagnýtar aðferðir, tól og verkfæri sem geta nýst í almennri stjórnun, skipulagningu og samskiptum innan fyrirtækja sem og í sjálfstæðum verkefnum. Í náminu verður farið yfir grunninn í verkefnastjórnun, leiðtogahæfni og sjálfsþekkingu, árangursríka teymisvinnu, skilgreiningu, skipulag verkefna og samskipti. Nemendur læra að útbúa verkáætlun og fjárhagsáætlun og að framkvæma áhættugreiningu og hagsmunaaðilagreiningu svo eitthvað sé nefnt. Námsleiðin eflir þátttakendur í að stýra verkefnum sem sterkir leiðtogar og að setja af stað, fylgja eftir og ljúka verkefnum svo allir hagsmunaaðilar séu sáttir.

Námsleiðin nýtist sem grunnur fyrir D-vottun í verkefnastjórnun hjá Verkefnastjórnunarfélagi Íslands
Fyrir hverja
Verkefnastjórnun er sífellt mikilvægari þáttur í almennri stjórnun og er aðferðafræði hennar notuð í nánast öllu starfi nú til dags. Því má hagnast verulega á því að kunna aðferðafræði verkefnastjórnunar á vinnumarkaði í dag og geta tól verkefnastjórnunar skapað ákveðið samkeppnisforskot fyrir þá sem kunna að nota þau.

Námskeiðið er ætlað fyrir bæði stjórnendur og einstaklinga sem:

- Vilja efla sig í skipulagningu og yfirsýn verkefna, samskiptum við þverfagleg teymi og utanaðkomandi hagsmunaaðila.

- Þurfa að nota verkefnastjórnun í stínu starfi, þurfa að ná góðri yfirsýn og drífa verkefni áfram af öllum stærðum og gerðum.

- Vilja nýta sér verkfæri og aðferðir verkefnastjórnunar.

- Fyrir þá sem vilja efla sig sem leiðtogar.

- Fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir D-vottun í verkefnastjórnun.
Leiðir í boði
    Fjarnám sem hefst á auglýstum degi.
    Tímarammi afmarkaður(upphaf og endir). Þú hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar þú sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(í lok hverrar lotu). Þú ert hluti af hópi sem fylgist að ásamt leiðbeinenda/-um inn á nemendasvæði og ert með einkasvæði milli þín og kennara. Ef það eru fundir og/eða streymi úr kennslu þá er það allt aðgengilegt á upptökum ef þú tekur ekki þátt í þeim.

    Fjarnám í FRELSI (í boði eftir 15.maí nk.)
    Þú getur skráð þig, greitt og byrjað samstundis. Fyrir þá sem vilja meira frelsi, fullt nám og fullgilt Diplóma á eigin hraða. Þú færð mun lengri tíma (180 daga) til að klára námið en þeir sem sækja hefðbundið línulegt fjarnám. Þú hefur val hvenær þú lærir og hvenær þú skilar verkefnum. Markmið leiðbeinenda er að svara öllum fyrirspurnum inna viku. Undantekningar tengjast rauðum dögum (hefðbundnum frítímabilum).

    Sjálfsnám (í boði eftir 15.maí nk.)
    Þú skráir þig, greiðir og getur hafið námið samstundis. Fyrir þá sem vilja fá aðgengi að öllu námsefninu en sækjast ekki eftir Diplóma/frammistöðumati. Þú færð 180 daga til að fara í gegnum námið. Sjálfsnámið er byggt upp þannig að þú átt að geta bjargað þér án aðtoðar í gegnum námsefnið.

Markmið
Það sem við viljum að þú fáir út úr námskeiðinu er eftirfarandi:
    Ná góðum skilningi á helstu aðferðum faglegrar verkefnastjórnunar.
    Öðlist breiða innsýn í helstu aðferðir sem nýttar eru í verkefnastjórnun.
    Að veita þér aðgengi að aðferðum og hagnýtri verkfærakistu sem þú getur nýtt í daglegri stjórnun verkefna.
Námsyfirferð og kennsluaðferðir
Fjarnám - 6 vikna lotunám, verkefnaskil og diplóma:

Hver lota er ein vika. Þátttakendur fá allt námsefni og ítarefni í upphafi hverrar lotu ásamt verkefnum til að vinna þegar það á við. Frammistöðumat / einkunn er gefin fyrir námið sem byggir á verkefnaskilum. Fólki er frjálst að skila verkefnum, en án verkefnaskila er ekki hægt að veita viðkomandi frammistöðumat. Þeir sem vinna samviskusamlega og skila verkefnum fá Diplóma frá NTV skólanum með einkunnum.

Verkefni eru að eigin vali og geta verið hluti af raunhæfum verkefnum sem verið er að vinna að eða nemendum langar að vinna að. Eins geta verkefnin verið skálduð eða verkefni sem búið er að framkvæma. Allar verkefnahugmyndir þarf að leggja fyrir kennara í upphafi svo hægt sé að meta hvort þau séu raunhæf vegna t.d. tímalengdar eða umfangs.
    Lota 1
    Inngangur í verkefnastjórnun og heim verkefnastjórans

    Lota 2
    Leiðtogahæfni og samskipti

    Lota 3
    Undirbúningur verkefna

    Lota 4
    Undirbúningur verkefna (framhald)

    Lota 5
    Framkvæmd verkefna og verkefnaskil

    Lota 6
    Lokaverkefni og kynning

Frammistöðumat / Diplóma
Þeir þátttakendur sem vinna vel verkefni fá frammistöðumat frá skólanum en það er auðvitað valfjrálst öllum hvort þeir geri það.
Áætlað vinnuframlag
Skólinn áætlar að hver nemandi þurfi að verja um 10-15 klukkustundum á viku í viðkomandi námsleið, að því gefnu að viðkomandi leggi sig fram. Það er auðvitað breytilegt eftir einstaklingum og áhuga og metnaði viðkomandi. Nemendur fá frammistöðumat/einkunnir að námi loknu, og má gera ráð fyrir að samhengi sé á milli vinnuframlags og frammistöðu.
Annað
Námsefnið, verkefnin og nemendaumhverfið:

Námsefnið er í formi kennslumyndbanda sem leiðbeinendur og skólinn hafa framleitt, lesefni, ítarefni auk verkefna. Nemendur fá aðgengi að því efni sem tengist hverri lotu við upphaf lotunnar. Aðgengið að námsefninu og samskipti við leiðbeinendur er í gegnum nemendaumhverfi skólans. Hluti af námsefninu getur verið á ensku, þá aðallega ítarefni.
Verkefni geta verið greinargerðir, aðgerðaráætlun, próf/quiz eða hvað sem kennarar í fjarnámi telja að henti best hverju viðfangsefni. Nemendaumhverfi skólans er í gegnum Office 365 umhverfið, þar sem öll miðlun á efni og samskipti eru í Teams, í lokuðum hópi. Á fyrsta degi, þegar námið hefst, fá nemendur sendan aðgang að nemendasvæðinu svo fremi sem þeir hafa gengið frá greiðslum/greiðslusamkomulagi.
Umsjón með náminu
Árni Stefánsson, verkefnastjóri hjá Sölufélagi Garðyrkjumanna, Svava Björk Ólafsdóttir, stofnandi RATA og Dóróthea Ármann, sjálfstæður verkefnastjóri.
Greiðslumöguleikar
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

SKRÁNING

Verkefnastjórnun – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax í dag.

Verð: 335.000 kr.

Verkefnastjórnun – Fjarnám

Hefst: 9. Oct '24
Lýkur: 20. Nov '24
Fjarnám í 6 lotum. Verkefnaskil, endurgjöf og diplóma í boði.

Verð: 275.000 kr.

Verkefnastjórnun – Sjálfsnám

Byrjaðu strax í dag.

Verð: 185.000 kr.