Verkefnastjórnun á mannamáli er hagnýt námsleið í fjarnámi þar sem farið er yfir verkefnastjórnun frá A–Ö. Nemendur læra að skipuleggja og stýra verkefnum úr eigin lífi eða starfi með aðferðum og verkfærum verkefnastjórnunar.
Í náminu er lögð áhersla á leiðtogahæfni, sjálfsþekkingu, teymisvinnu, samskipti og skilgreiningu og skipulag verkefna. Nemendur læra meðal annars að útbúa verk- og fjárhagsáætlanir, framkvæma áhættu- og hagsmunaaðilagreiningar og leiða verkefni frá upphafi til enda með hagsmuni allra að leiðarljósi. Þekkingin nýtist jafnt við stjórnun og skipulag innan fyrirtækja sem og í sjálfstæðum verkefnum.
Á námstímanum eru haldnir að minnsta kosti tveir Teams-fundir með kennurum þar sem farið er yfir verkefni fram undan og nemendur geta spurt spurninga, rætt vangaveltur og fengið leiðsögn.
Námið getur nýst sem grunnur fyrir D-vottun í verkefnastjórnun hjá Verkefnastjórnunarfélagi Íslands.
Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.
Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans. Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.
Sjá nánar: Námsform í boði
Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.
Sjá nánar: Námsform í boði
Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.
Sjá nánar: Námsform í boði
Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.
Sjá nánar: Námsform í boði