Tollskýrslugerð grunnur

Grunnur

169.000 kr.

Um námið

Tollskýslugerð grunnur er hagnýtt grunnnám um gerð tollskýrslna. Farið er í helstu reglur er varða inn- og útflutning, tollskýrslugerð, innflutningstakmarkanir og undanþágur. Farið er yfir fylgiskjöl með vörusendingum og hvaða tilgangi þau þjóna við innflutning og gerð tollskýrslna. Farið er m.a. yfir myndun tollverðs og útreikning aðflutningsgjalda. Kynntir eru fríverslunarsamningar og notkun tollskrárinnar.

Í boði er að texta myndböndin í fjarnáminu á íslensku, ensku og pólsku. Nemendur sem hafa íslensku sem annað tungumál fá stuðningsefni.
Þessi námsleið er ætluð byrjendum í tollskýrslugerð og/eða fyrir þá sem vilja styrkja kunnáttu sína á þessu sviði. Þátttakendur á þessu námskeiði þurfa að hafa góða almenna tölvukunnáttu.
Að loknu námi eiga þáttakendur að:
  • Kynnast helstu reglum varðandi tollskýrslugerð.
  • Þekkja fylgiskjöl með vörusendingum og hvaða tilgangi þau þjóna.
  • Geta gert tollskýrslur og reiknað út aðflutningsgjöld.
  • Öðlast grunnskilning á fríverslunarsamningum og gildi þeirra.
  • Öðlast grunnskilning á hvernig nota eigi tollskránna til að tollflokka vöru.
Helstu atriði sem farið er yfir:
  • Feril vörusendingar og fylgiskjöl.
  • Afhendingarskilmála.
  • Helstu reglur varðandi innflutning.
  • Tollflokkun vöru.
  • Fríverslunarsamningar og gildi þeirra.
  • Útfyllingu innflutningsskýrslu bæði á pappír og rafrænt.
  • Útreikning á tollverði og aðflutningsgjöldum með verkefnum.
  • Hvernig innflutningsskýrsla er útbúin þegar leiðrétta þarf þegar tollafgreidda innflutningsskýrslu.
  • Leyfi og bönn kynnt.
  • Sýnd dæmi um EUR – tollmeðferð.
  • Farið er í gegnum útfyllingu útflutningsskýrslu, þ.e. hvað á að skrá í hvern reit og helstu atriði er snúa að útflutningi.
Þessi námsleið veitir diplóma svo fremi sem nemendur standist frammistöðumat.
7 kennsludagar. Að nemendur séu virkir og leysi þau verkefni sem sett eru fyrir.

Tollskýrslugerð grunnur – Fjarnám

Hefst: 12. May '26
Lýkur: 2. Jun '26
Kennsla fer fram í fjarnámi.

Verð: 169.000 kr.

16.822 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði