Stjórnun og leiðtogafærni

á mannamáli

Price range: 335.000 kr. through 435.500 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Námsleiðin Stjórnun og leiðtogafærni á mannamáli er sérsniðin að millistjórnendum með mannaforráð. Með aukinni leiðtogafærni er hægt að ná fram auknum árangri samhliða því að skapa ánægðara teymi og heilbrigðari vinnustað. Við lok námsleiðarinnar hafa þátttakendur öðlast breiða yfirsýn á stjórnunar- og leiðtogafræði. Eins hafa þeir aðgang að aðferðum og praktískum tólum og tækjum sem þeir geta nýtt í sínum störfum við að leiða sitt teymi / sína skipulagsheild í átt að árangri og stuðla að vellíðan starfsmanna.
Niðurstöður rannsókna á frammistöðu stjórnenda víða um heim sýna að árangursríkir stjórnendur eru þeir sem beita mismunandi stjórnunarstíl eftir einstaklingum og aðstæðum hverju sinni. Þær rannsóknir sýna að 50-70% af starfsanda og líðan starfsfólks á vinnustað útskýrist af stjórnunarstíl stjórnenda. Það er því ljóst að ábyrgð stjórnenda er mikil.
Námskeiðið Stjórnun og leiðtogafærni á mannamáli er sérsniðið að:

Millistjórnendum með mannaforráð
Stjórnendum sem vilja efla sig sem leiðtoga
Stjórnendum sem eru undir miklu álagi og vilja læra leiðir til minnka álagið á sjálfum sér á sama tíma og þeir ná meiri árangri
Stjórnendum sem er umhugað um líðan starfsfólks
Stjórnendum sem vilja með góðu skipulagi, samskiptum og heilbrigðu starfsumhverfi skapa umhverfi þar sem teymið nær hámarks árangri
Stjórnendum sem vilja efla sig í framkomu og að halda kynningar
Að þátttakendur öðlist meiri þekkingu og hæfni til að skapa fyrirtækjamenningu sem stuðlar að vellíðan starfsfólks og hámarkar árangur heildarinnar. Við lok námskeiðs hafa þátttakendur öðlast breiða yfirsýn á stjórnunar- og leiðtogafræði. Eins hafa þeir aðgang að aðferðum og praktískum tólum og tækjum sem þeir geta nýtt í sínum störfum við að leiða sitt teymi/sína skipulagsheild í átt að árangri.
Námsleiðin er kennd í sex lotum þar sem hver lota er ein vika. Lota 1 Stefnumótun og leiðtogafærni Lota 2 Teymisfræði og samskipti Lota 3 Heilbrigður vinnustaður og starfsumhverfi nútímans Lota 4 Verkefnastjórnun og breytingastjórnun Lota 5 Samningatækni og aðferðir í hröðum veruleika Lota 6 Kraftmiklar kynningar og framkoma, framtíðarsýn og lokaverkefni Þátttakendur fá allt námsefni og ítarefni í upphafi hverrar lotu ásamt verkefni til að vinna þegar það á við. Frammistöðumat / einkunn er gefin fyrir námið sem byggist á verkefnaskilum. Þátttakendum er frjálst að skila verkefnum, en án verkefnaskila er ekki hægt að veita viðkomandi frammistöðumat.
Nemendur fá frammistöðumat / einkunnir að námi loknu og má gera ráð fyrir að samhengi sé á milli vinnuframlags og frammistöðu.
Skólinn áætlar að hver nemandi þurfi að verja um 10-15 klukkustundum á viku í viðkomandi námsleið, að því gefnu að viðkomandi leggi sig fram. Það er auðvitað breytilegt eftir einstaklingum sem og áhuga og metnaði viðkomandi.
Námsefnið, verkefnin og nemendaumhverfið:

Námsefnið er í formi kennslumyndbanda sem leiðbeinendur og skólinn hafa framleitt, lesefni, ítarefni auk verkefna. Nemendur fá aðgengi að því efni sem tengist hverri lotu við upphaf lotunnar. Aðgengið að námsefninu og samskipti við leiðbeinendur er í gegnum nemendaumhverfi skólans. Hluti af námsefninu getur verið á ensku, þá aðallega ítarefni. Verkefni geta verið skýrslur, greinargerðir, aðgerðaáætlun, myndbönd, próf / quiz eða hvað sem kennarar í fjarnámi telja að henti best hverju viðfangsefni.
Nemendaumhverfi skólans er í gegnum Office 365 umhverfið, þar sem öll miðlun á efni og samskipti eru í Teams, í lokuðum hópi. Á fyrsta degi, þegar námið hefst, fá nemendur sendan aðgang að nemendasvæðinu svo fremur sem þeir hafa gengið frá greiðslum/greiðslusamkomulagi.

Stjórnun og leiðtogafærni – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax og þú hefur 180 daga, einn á móti kennara og ekki hluta af hópi.

Verð: 435.500 kr.

42.531 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Stjórnun og leiðtogafærni – Fjarnám

Hefst: 30. Sep '26
Lýkur: 11. Nov '26

Verð: 335.000 kr.

32.830 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði