Mannauðsstjórnun – á mannamáli

Price range: 262.500 kr. through 487.500 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Mannauðsstjórnun á mannamáli er námsleið þar sem fjallað er um margvísleg málefni mannauðsstjórnunar og lögð áhersla á að veita þátttakendum hagnýt verkfæri til að takast á við viðfangsefni mannauðsstjórnunar í daglegri stjórnun. Fjallað verður um leiðir til að velja rétta starfsfólkið til starfa, hvað ber að hafa í huga við faglega móttöku nýliða, hvernig megi skipuleggja þjálfun starfsmanna, hvernig eigi að ræða um og bæta frammistöðu og hvernig megi ná fram betri afköstum starfsfólks með hvatningu, eflingu liðsheildar og góðum samskiptum. Einnig er farið yfir ýmis viðfangsefni, eins og hvernig eigi að taka ákvörðun um laun, fjallað um árangursríkar leiðir til að taka á erfiðum samskiptamálum, hvernig eigi að takast á víð tíðar veikindafjarvistir og hvernig megi fyrirbyggja streitu og kulnun í starfi. Uppsagnir og starfslok.
  • Stjórnendur sem vilja efla sig í stjórnun starfsfólks og skapa starfsumhverfi sem dregur fram það besta í fólki og hámarkar frammistöðu.
  • Einstaklingar sem starfa við mannauðsmál.
  • Þeir sem hafa almennan áhuga á mannauðsmálum.
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
  • Þekkja og skilja helstu aðferðir faglegrar mannauðsstjórnunar.

  • Skilja hvernig markviss mannauðsstjórnun getur bætt frammistöðu starfsfólks og stutt heildarárangur fyrirtækis eða skipulagseiningar.

  • Hafa öðlast breiða innsýn í lykilaðferðir og nálganir á sviði mannauðsmála.

  • Hafa aðgang að hagnýtum aðferðum og verkfærum sem nýtast í daglegri stjórnun mannauðs.

  • Geta nýtt verkfærakistu námsins við uppbyggingu eða þróun mannauðshlutverks innan fyrirtækis eða skipulagseiningar á almennum vinnumarkaði.

Námið samanstendur af eftirfarandi lotum:
  • Lota 1 Hvað er mannauðsstjórnun og hvernig verð ég góður stjórnandi?
  • Lota 2 Ráðningar. Að ráða rétta fólkið fyrir starfið.
  • Lota 3 Móttaka, þjálfun og fræðsla.
  • Lota 4 Að stjórna frammistöðu og leiða breytingar.
  • Lota 5 Hvatning og helgun.
  • Lota 6 Að byggja upp liðsheild og erfið starfsmannamál.
  • Lota 7 Heilsa, vellíðan og vinnuumhverfið.
  • Lota 8 Laun, fríðindi og réttindi, starfslok og uppsagnir.
Þátttakendur fá allt námsefni og ítarefni í upphafi hverrar lotu ásamt verkefni til að vinna þegar það á við.
Frammistöðumat / einkunn er gefin fyrir námið sem byggist á verkefnaskilum. Þátttakendum er frjálst að skila verkefnum, en án verkefnaskila er ekki hægt að veita viðkomandi frammistöðumat.
Áætlað er að hver nemandi þurfi að verja að meðaltali 6-8 klukkustundum á viku í til að sinna námsleiðinni vel (umþb 48-64 klst. öll námsleiðin). Það er auðvitað breytilegt eftir einstaklingum og áhuga og metnaði viðkomandi.
Námsefnið, verkefnin og nemendaumhverfið:

Námsefnið er í formi kennslumyndbanda sem leiðbeinendur og skólinn hafa framleitt, lesefni, ítarefni auk verkefna. Nemendur fá aðgengi að því efni sem tengist hverri lotu. Aðgengið að námsefninu og samskipti við leiðbeinendur er í gegnum nemendaumhverfi skólans. Hluti af námsefninu getur verið á ensku, þá aðallega ítarefni. Verkefni geta verið greinargerðir, aðgerðaáætlun, próf / quiz eða hvað sem kennarar í fjarnámi telja að henti best hverju viðfangsefni.
Ef þú ert í línulegu fjarnámi (í hópi) þá er nemendaumhverfi skólans í Office 365 umhverfinu. Þar fer þá fram öll miðlun á efni og samskipti eru í Teams í lokuðum hópi. Á fyrsta degi, þegar námið hefst, fá nemendur sendan aðgang að nemendasvæðinu svo fremi sem þeir hafa gengið frá greiðslum / greiðslusamkomulagi.
Ef þú velur Frelsisnám þá er öll miðlun og þjónusta/samskipti í gegnum vafra og heimasíðu skólans.

Meðmæli

Ég mæli vel með náminu mannauðsstjórnun á mannamáli. Mér fannst námskeiðið faglegt og mjög hagnýtt og nýtast vel þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á mannauðsmálum.  Mér fannst frábært að geta sinnt náminu á mínum hraða þegar mér hentaði. Námið skilar góðum verkfærum til að takast á við viðfangsefni mannauðsstjórnunar.

Dagrún Fanný Liljarsdóttir BA félagsráðgjöf, MA stjórnun og stefnumótun

Mannauðsstjórnun á mannamáli er frábært nám og hentar virkilega vel til að fá góða innsýn og fullt af verkfærum í málefnum mannauðsstjórnunar. Ég hef nýtt mér það mjög vel í mínu starfi sem mannauðsstjóri á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, en ég er nýbyrjaður í því starfi. Námið er praktískt og mjög mikið af efninu nýtist í daglegum...

Sigurður Þór Sigursteinsson, mannauðsstjóri á Heilbrigðisstofnun Vesturlands.

Mannauðsstjórnun – á mannamáli – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax í dag.

Verð: 487.500 kr.

47.530 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Mannauðsstjórnun – á mannamáli – Fjarnám

Hefst: 11. Mar '26
Lýkur: 13. May '26
Fjarnám, 8 lotur. Verkefnaskil, endurgjöf og diplóma í boði.

Verð: 385.000 kr.

37.640 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Mannauðsstjórnun – á mannamáli – Sjálfsnám

Verð: 262.500 kr.

25.821 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði