Forritun grunnur „Smakkið“

"Smakkið" eins og við köllum það

188.500 kr.

Um námið

Í Forritun grunnnám, eða Smakkinu eins og við köllum það, fá nemendur kynningu á helstu grunnatriðum forritunar með möguleika á að halda áfram í fullt nám. Mikil gróska er í faginu og skortur á forriturum, enda er starfið bæði fjölbreytt og gefandi. Fyrir þá sem halda áfram á Forritunarbrautinni nýtast 75% af námskeiðsgjaldi grunnnámsins sem afsláttur af brautinni og gildir það í 12 mánuði.
Forritun grunnnám er góður kostur ef þú hefur áhuga á því að kynnast forritun en ert ekki viss um hvort námið sé fyrir þig. Námið hentar einnig vel ef þú ert að íhuga að breyta um starfsvettvang. Ef þú hefur þegar reynslu af forritun og veist út á hvað starfið gengur, mælum við með því að þú kynnir þér Forritunarbrautina.
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
  • Hafa kynnst helstu atriðum sem snúa að almennri forritun.
  • Geta notað forritunarumhverfið Visual Studio og búið til ný verkefni með því.
  • Kunna að gera skilyrði (if/else) og lykkjur.
  • Geta sýslað með GIT kóðastýringu.
Helstu atriði:
  • Í hverjum kennslutíma er bæði fyrirlestur og verkefni, enda er námið mjög verkefnamiðað.
  • Hvatt er til heimanáms.
  • Nemendur hvattir til að lesa sér til um forritun og fá til þess efni hjá kennara og hinsvegar ættu nemendur að æfa sig heima og búa til forrit á eigin spýtur til að þjálfa sig
  • Þegar kemur að lokaverkefninu munu nemendur ná betri árangri ef þeir vinna að verkefninu heima hjá sér líka.

Meðmæli

Að stúdentsprófi loknu fór ég beint á vinnumarkað þar sem ég hafði ekki fundið námsbraut sem höfðaði til mín. Það var ekki fyrr en ég sá Facebook auglýsingu frá NTV þar sem ég sá tækifæri til að setjast aftur á skólabekk, án þess að skuldbinda mig náminu með þeim hætti að ég þyrfti að segja...

Ósk Björnsdóttir Frontend Engineer hjá Energy Machines í Kaupmannahöfn.

Forritun grunnur „Smakkið“ – Fjarnám

Hefst: 23. Sep '26
Lýkur: 28. Oct '26
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu. Síðasti tíminn er hakkaþon liðakeppni sem haldin er á laugardegi ef næg þáttaka (hefur verið vinsælt og tekist mjög vel).

Verð: 188.500 kr.

18.542 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Forritun grunnur „Smakkið“ – Kvöldnám

Hefst: 23. Sep '26
Lýkur: 28. Oct '26
Dagar: mánudagur, miðvikudagur – Tími: 18:00 – 21:00. Síðasti tíminn er hakkaþon liðakeppni sem haldin er á laugardegi ef næg þáttaka (hefur verið vinsælt og tekist mjög vel).

Verð: 188.500 kr.

18.542 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði