Framtal og skattskil

69.000 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Hagnýtt hjálpargagn við gerð skattframtals og við skattskil sem miðar að því að auka skilning og færni. Fyrir minni fyrirtæki, rekstraraðila og einstaklinga með eigin rekstur. Farið í gegnum helstu skref við útfyllingu og afstemningar á eyðublöðum og rekstrarskýrslum hjá Skattinum. Um er að ræða netnám sem veitir þér aðgengi að góðum námsgögnum, hagnýtum verkefnum og úrlausnum í sex mánuði. Námskeiðið er opið núna.
Hagnýtt hjálpargagn við gerð skattframtala og við skattskil sem miðar að því að auka skilning og færni. Hugsað fyrir minni fyrirtæki, rekstraraðila og einstaklinga með eigin rekstur. Farið í gegnum helstu skref við útfyllingu og afstemmingar á eyðublöðum og rekstrarskýrslum hjá Skattinum.

Stafrænt námskeið er hagnýt og hagkvæm leið sem veitir þér góðar leiðbeiningar og stuðning ef þú ætlar að vinna við framtal einstaklings með rekstur eða lítils fyrirtækis.

Þetta stafræna námskeið er alls ekki ætlað að skapa þér einhverja sérfræðiþekkingu, fyrst og fremst auka færni og yfirsýn og vera gott stuðningstæki. Án efa er þetta gott námskeið fyrir Viðurkennda bókara og fólk sem starfar við bókhald og umframm allt þá sem eru að vinna með eigin framtöl.

Á námskeiðinu verður farið í gegnum helstu þætti sem snúa að íslensku skattaumhverfi og skattskilum rekstraraðila og einstaklinga með rekstur. Sýnd verða dæmi um gerð skattframtala fyrir einstaklinga, einstaklinga með rekstur og lítil einkahlutafélög.
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur fái góða grunnþekkingu á íslensku skattaumhverfi og nái að bæta færni sína við framtalsgerð og skattskil.
Námskeiðið er stafrænt, aðgengi opnast um leið og þú greiðir og því hægt að sinna því á þeim tíma sem hentar hverjum og einum. Sérlega gagnlegt samhliða skilum á framtali og sköttum. Námsleiðin skiptist í 3 lotur: Lota 1 Skattar og gjöld – Regluverk skatta í hnotskurn. Lota 2 Skattkerfið Tekjuskattur Launatengd gjöld Virðisaukaskattur Ársreikningur Gagnaskil og framtalsfrestir Lota 3 Skattframtal einstaklings með atvinnurekstur – RSK 4.11 Skattframtal rekstraraðila – RSL 1.04
Leiðbeinendur eru Knútur Þórhallsson og Björn Jónsson.

Knútur Þórhallsson er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Knútur hefur sinnt stundakennslu á háskólastigi og haldið ýmsa fyrirlestra og kynningar á ráðstefnum og fundum, jafnt fyrir viðskiptavini og starfsmenn. Knútur er einn eiganda Advant endurskoðunar ehf.

Björn Jónsson er viðskiptafræðingar frá Háskóla Íslands og viðurkenndur bókari. Hann hefur mikla reynslu úr atvinnulífinu sem stjórnandi og ráðgjafi. Björn starfar á fjármálaskrifstofu Háskóla Íslands ásamt því að kenna í Viðurkennda bókaranum hjá NTV skólanum.

Framtal og skattskil – Sjálfsnám

Verð: 69.000 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði