Forritun II –  Bakendi

Vefþjónustur, gögn og gagnagrunnar

545.000 kr.

Um námið

Í öðrum hluta Forritunar byggja nemendur ofan á þann grunn sem lagður er í Forritun I og öðlast dýpri skilning á uppsetningu, rekstri og þjónustustýringu veflausna. Áhersla er lögð á sjálfvirkni í birtingu og prófun, auk þróunar á gagnvirkum veflausnum með nútímatólum. Önninni lýkur með lokaverkefni þar sem nemendur hanna og útfæra smáforrit eða einfalt rafrænt verslunarkerfi með notendastjórnun, körfu og pöntunarkerfi.
Námið er fyrir þá sem hafa lokið námskeiðinu Forritun 1. hluti eða geta sýnt fram á sambærilega þekkingu á viðfangsefnum sem þar eru kennd. Það hentar þeim sem vilja dýpka færni sína í vefþróun og þróa fullvirkar lausnir sem byggja á bæði framenda- og bakendatækni.
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
  • Hafa góðan skilning á uppsetningu og þjónustustýringu veflausna.
  • Geta unnið með bakenda og API-grunn með Node.js.
  • Hafa trausta færni í JavaScript og React.
  • Kunna að vinna markvisst með Git og GitHub.
  • Geta hannað og útfært einfalt vefkerfi með notendastjórnun og pöntunarferlum.
  • Vera undirbúnir fyrir áframhaldandi nám eða störf í vefþróun.
Helstu námshlutar sem verður farið í eru:
  • Node.js & Express Uppsetning vefþjóns, routing og miðlar (middleware).
  • REST API‑hönnun Hönnun og útfærsla endpointa, JSON‑samskipti og staðfesting gagna.
  •  CI/CD með GitHub Actions Sjálfvirkar byggingar, prófanir og birtingar með sætafyrirspurnum.
  • Vefþjónusta og hýsing Skýjalausnir (t.d. Netlify, Heroku), DNS‑stjórnun og öryggisuppsetning.
  • Auðkenning & leyfisveitingar JWT, session‑stjórnun og notendahlutverk.
  • Prófanir á bakenda Einingapróf, samþættingarpróf og mocking.
  • Önninni lýkur með lokaverkefni þar sem nemendur hanna og útfæra „Card Saver“-smáforrit eða einfalt rafrænt verslunarkerfi með notendastjórnun, körfu og pöntunarkerfi.

Lokaverkefni og skilaverkefni gilda sem frammistöðumat.


20% – tímaverkefni
Verkefni sem eru kennd yfir hvern tíma. Farið yfir hugtök.


40% – 3x skilaverkefni
Stærri verkefni sem notað er við það sem er kennt í tímum. Förum yfir.


40% – Lokaverkefni
Ennþá stærra verkefni í nokkrar vikur og er hugsað sem lokapróf.

Kennslan er áætluð um 100 klst., en áætlað námsframleg er nærri 120-180 klst. yfir önnina eða sem nemur um 8-13 klst á viku. En þetta er auðvitað mjög persónubundið.

Forritun II –  Bakendi – Kvöldnám

Hefst: 17. Sep '26
Lýkur: 21. Jan '27
Kennt þriðjudaga og fimmtudaga – Tími: 18:00-21:00 & verkefnatímar 1-2 laugardaga

Verð: 545.000 kr.

52.557 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Forritun II –  Bakendi – Fjarnám

Hefst: 17. Sep '26
Lýkur: 21. Jan '27
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Kennslutímum er streymt og þú hefur aðengi að upptökum ef þú getur ekki tekið þátt. Stefnt að því að vera með staðarnám í boði að hluta til ef næg þátttaka er í slíkt. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 545.000 kr.

52.557 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði