Bókhaldsbraut

2 annir
Frelsi í boði

Price range: 704.500 kr. through 895.000 kr.

Um námið

Tveggja anna námsbraut sem er grunnnám í bókhaldi og bókaranám framhald. Eftir þetta nám átt þú að geta sinnt öllum almennum bókhaldsstörfum ef þú nærð góðum árangri í náminu. Námið er mjög hagnýtt og verkefnadrifið og er í boði í stað- og fjarnámi og einnig í fjarnámi í frelsi. Námið er kennt frá grunni og það eru engin inntökuskilyrði. Að námi loknu átt þú að hafa öðlast gott vald á öllum helstu færniþáttum sem einkenna góðan bókara.

Brautin samanstendur af Bókhald grunnur og Bókaranámi framhald.
Námið er ætlað þeim sem vilja öðlast haldbæra þekkingu á sviði bókhalds. Námið byggir á kennslu og verklegum æfingum, þar sem nemendur fá mikið af hagnýtum verkefnum til að undirbúa þá á sem bestan hátt fyrir starf tengdu bókhaldi. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda undir handleiðslu kennara. Árangursríkasta leiðin til að ná góðum tökum á bókhaldi er endurtekning og er mikilvægt að nemendur gefi sér tíma til í heimanám. Allir námsþættir eru kenndir frá grunni og lýkur þeim með prófi.
Bókhaldsbrautin skiptist í tvo hluta (2 annir):
Bókhald grunnur (1.önn):
  • Lota 1 – Verslunarreikningur
  • Lota 2 – Excel grunnur
  • Lota 3 – Bókhald grunnur
  • Lota 4 – Tölvubókhald (Business Central)
Bókhald framhald (2.önn):
  • Lota 1 – Excel framhald
  • Lota 2 – Launavinnsla
  • Lota 3 – Viðskiptamenn og niðurfærsla krafna
  • Lota 4 – Fyrningar
  • Lota 5 – Lán og VSK
  • Lota 6 – Ársreikningagerð
Þessi námsbraut veitir diplóma svo fremi sem nemendur standist frammistöðumat.
Endilega lesið vel námslýsingu bæði í grunnnáminu og í framhaldinu: Bókhald grunnur og Bókaranámi framhald.

Námið byggir á mikilli verkefnavinnu og gera má ráð fyrir all nokkurri heimavinnu. Lögð er áhersla á að verkefnin séu hagnýt og til þess fallin að auka skilning og færni nemenda og styrkja þá í sjálfstæðum vinnubrögðum.

Meðmæli

Helsta ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrá mig í nám hjá NTV skólanum var sú að ég stóð fyrir framan miklar breytingar í lífinu og var búinn að sjá auglýsingar á Facebook um Grunnnám í Bókhaldi og Excel. Þegar líða tók að lokum þeirrar annar þá ákvað ég að skrá mig alla leið,...

Kristján Jóhannes Pétursson

Ég skráði mig í fjarnám í bókhaldi. Ég hafði unnið voða lítið við bókhald en fann að það var starf sem ég gæti vel hugsað mér. Ég var búin að skoða þó nokkra möguleika varðandi bókaranám og spyrja aðra bókara sem ég kannaðist við. Svörin voru frekar einróma þar sem allir nefndu NTV. Þá varð...

Jóhanna Harðardóttir

Bókhaldsbraut – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax í dag.

Verð: 895.000 kr.

86.177 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Bókhaldsbraut – Fjarnám

Hefst: 17. Feb '26
Lýkur: 10. Dec '26
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófum. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 704.500 kr.

67.939 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Bókhaldsbraut – Morgunnám

Hefst: 16. Feb '26
Lýkur: 10. Dec '26
Kennsla fer fram frá klukkan 08.30-12.00. Grunnnámið (fyrri önnin) er kennt á mánudögum og bókaranám framhald (seinni önnin) á þriðjudögum.

Verð: 704.500 kr.

67.939 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Bókhaldsbraut – Kvöldnám

Hefst: 17. Feb '26
Lýkur: 10. Dec '26
Kennsla fer fram frá klukkan 18.00-21.30. Grunnnámið (fyrri önnin) er kennt á mánudögum og bókaranám framhald (seinni önnin) á þriðjudögum. Boðið verður upp á verkefnadag með kennara á fimmtudögum aðra hverja viku á sömu tímum á meðan það er næg þátttaka.

Verð: 704.500 kr.

67.939 kr/mán
(m.v. 12 mán)