Bókhald grunnur

og Excel

Price range: 290.000 kr. through 428.500 kr.

Um námið

Bókhald grunnur er fyrir þá sem vilja starfa við bókhald eða fá góðan grunn til frekara náms tengdu bókhaldi. Að loknu námi eiga nemendur að vera færir um að sinna einföldum bókhaldsstörfum sem samanstanda af dagbókarfærslum, bankaafstemmningum og virðisaukauppgjöri. Námið er verkefnadrifið og til þess fallið að undirbúa nemendur sem best fyrir atvinnulífið. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda undir handleiðslu kennara. Námið er kennt frá grunni og lýkur hverri lotu með prófi.
Námið er fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna við bókhald og/eða vilja skilja undirstöðuþætti þess betur. Námið er ætlað fólki sem er 18 ára eða eldra og hefur almenna tölvukunnáttu.
Að loknu námi eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Helstu þáttum verslunarreiknings
  • Grunnaðgerðum í Excel töflureikni
  • Grunnþekkingu í dagbókarfærslum og gerð efnahags – og rekstrarreiknings
  • Helstu reglum um virðisaukaskatt ásamt útreikningi
  • Vinnslu bókhalds í Business Central
  • Afstemmingu banka og jöfnun viðskiptamanna
Námið skiptist upp í fjórar lotur:
  • Lota 1 – Verslunarreikningur
  • Lota 2 – Excel grunnur
  • Lota 3 – Bókhald grunnur
  • Lota 4 – Tölvubókhald (Business Central)
Við viljum benda á að fyrirtæki, stór og smá, leita í auknum mæli eftir starfsfólki úr nemendahópi NTV. Við mælum að sjálfsögðu með okkar góðu nemendum.
Áætlað vinnuframlag er um 8-12 klukkustundir á viku á meðan á námi stendur.

Meðmæli

Helsta ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrá mig í nám hjá NTV skólanum var sú að ég stóð fyrir framan miklar breytingar í lífinu og var búinn að sjá auglýsingar á Facebook um Grunnnám í Bókhaldi og Excel. Þegar líða tók að lokum þeirrar annar þá ákvað ég að skrá mig alla leið,...

Kristján Jóhannes Pétursson

Ég skráði mig í fjarnám í bókhaldi. Ég hafði unnið voða lítið við bókhald en fann að það var starf sem ég gæti vel hugsað mér. Ég var búin að skoða þó nokkra möguleika varðandi bókaranám og spyrja aðra bókara sem ég kannaðist við. Svörin voru frekar einróma þar sem allir nefndu NTV. Þá varð...

Jóhanna Harðardóttir

Bókhald grunnur – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax í dag.

Verð: 428.500 kr.

41.241 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Bókhald grunnur – Fjarnám

Hefst: 17. Feb '26
Lýkur: 2. Jun '26
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 334.500 kr.

32.302 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Bókhald grunnur – Kvöldnám

Hefst: 16. Feb '26
Lýkur: 2. Jun '26
Kennsla fer fram á mánudögum frá klukkan 18.00-21.30. Boðið verður upp á verkefnadag með kennara á fimmtudögum aðra hverja viku á sömu tímum á meðan það er næg þátttaka. Kennsluefni og verkefni aðgengilegt í nemendaumhverfi skólans. Námsaðstaða í boði á opnunartíma skrifstofu fyrir þá sem vilja.

Verð: 334.500 kr.

32.302 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Bókhald grunnur – Morgunnám

Hefst: 16. Feb '26
Lýkur: 2. Jun '26
Kennsla fer fram á mánudögum frá klukkan 8.30-12.00. Boðið verður upp á verkefnadag með kennara á fimmtudögum aðra hverja viku á sömu tímum á meðan það er næg þátttaka. Kennsluefni og verkefni aðgengilegt í nemendaumhverfi skólans. Námsaðstaða í boði á opnunartíma skrifstofu fyrir þá sem vilja.

Verð: 334.500 kr.

32.302 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Bókhald grunnur – Sjálfsnám

Byrjaðu strax í dag. Þú færð aðgang að öllu námsefni án kennara og engin próf innifalin.

Verð: 290.000 kr.

28.071 kr/mán
(m.v. 12 mán)