Adobe Photoshop

Myndvinnsla

Price range: 99.500 kr. through 234.500 kr.

Um námið

Í Adobe Photoshop eru kennd helstu atriði í myndvinnslu með áherslu á ljósmyndir og faglega meðferð þeirra. Í náminu er farið yfir grunnverkfæri og aðferðir forritsins, þar á meðal myndvinnslu, upplausn, lagavinnu og samsetningu mynda. Einnig er fjallað um nýjustu tækni og gervigreindarlausnir sem einfalda vinnuferla og auka skilvirkni. Námið er hagnýtt og verkefnadrifið.
Þetta nám er fyrir þá sem vilja læra að vinna markvisst í Adobe Photoshop og öðlast trausta grunnfærni í myndvinnslu. Það hentar byrjendum sem vilja vinna með ljósmyndir, laga og breyta myndum og nýta Photoshop í námi, starfi eða skapandi verkefnum.
Að loknu námi eiga þátttakendur að
  • Hafa góða yfirsýn yfir helstu verkfæri og vinnuferla í Adobe Photoshop.
  • Geta unnið sjálfstætt með ljósmyndir, lagað, breytt og sameinað myndir.
  • Skilja grunnatriði upplausnar, lagavinnu og myndmeðferðar.
  • Kunna að nýta nýjustu tækni og gervigreind til að einfalda og bæta myndvinnslu.

Grafísk hönnun í Photoshop

Heildarlengd: 28 klst. 8 mín.
Kynning 44 mín.
  • GH kynning 44:23
1. hluti: Grundvallaratriði 2 klst. 4 mín.
  • 01.01 Preferences (Stillingar) 25:37
  • 01.02 Umhverfi + Workspace 34:12
  • 01.03 Breyta stærð eða upplausn 09:12
  • 01.04 Laga litslikju 15:56
  • 01.05 Að rata 18:42
  • 01.06 Vistun 09:18
  • 01.07 Keyboard shortcuts 11:23
2. hluti: Layers — Hluti 1 1 klst. 24 mín.
  • 02.01 Layers panel 34:30
  • 02.02 Layer maskar — Kynning 21:15
  • 02.03 Layers virkja, velja 10:08
  • 02.04 Transform 18:29
3. hluti: Layers — Hluti 2 2 klst. 24 mín.
  • 03.01 Blending mode (Hluti 1) 12:32
  • 03.02 Blending mode (Hluti 2) 13:34
  • 03.03 Blending mode (Hluti 3) 05:45
  • 03.04 Blending mode (Hluti 4) 08:30
  • 03.05 Blending mode (Hluti 5) 11:41
  • 03.06 Layer maski 12:12
  • 03.07 Panorama 24:41
  • 03.08 Auto Align Layers 27:47
  • 03.09 Drop shadows 21:52
  • 03.10 Blend If 05:29
4. hluti: Að velja — Selections — Grunnur 2 klst.
  • 04.01 Grunnur 11:10
  • 04.02 Geometrísku áhöldin 30:39
  • 04.03 Lassóin 32:23
  • 04.04 Sjálfvirku áhöldin 26:31
  • 04.05 Object selection 20:07
5. hluti: Að velja — Selections — Flóknara 2 klst. 5 mín.
  • 05.01 Color range + Vistun á vali 27:25
  • 05.02 Quick mask 06:45
  • 05.03 Grow, Simular og transform selection 11:10
  • 05.04 Select & Mask (Hluti 1) 39:08
  • 05.05 Select & Mask (Hluti 2) 20:04
  • 05.06 Sky Replacement 21:02
6. hluti: Lagfæringar 3 klst. 25 mín.
  • 06.01 Crop Tólið 30:50
  • 06.02 Perspektíva Crop tólið 03:42
  • 06.03 Ruler tool 07:29
  • 06.04 Stamp Tools 32:33
  • 06.05 Spot Healing Patch Tools 23:39
  • 06.06 Red Eye Tool 05:43
  • 06.07 CA Move Tool 08:38
  • 06.08 CA Heal 05:25
  • 06.09 CA Fill 21:02
  • 06.10 CA Scale 14:59
  • 06.11 Puppet Warp 10:48
  • 06.12 Blur, Sharpen, Smudge + Dodge, Burn, Sponge 19:31
  • 06.13 Liquify 20:58
7. hluti: Litir 2 klst. 48 mín.
  • 07.01 Litir: Grunnur 12:26
  • 07.02 Litir: HSB 32:18
  • 07.03 Litir: Colorize Color Balance RGB 15:57
  • 07.04 Litir: Ýmislegt 29:40
  • 07.05 Litir: Curves + Gradient Map 23:48
  • 07.06 Litir: Málun mynda 16:01
  • 07.07 Litir: Ýmislegt (Lok) 37:50
8. hluti: Layer Styles + Filterar 2 klst. 2 mín.
  • 08.01 Smart Objects (Hluti 1) 15:36
  • 08.02 Layer Styles 15:34
  • 08.03 Camera Raw 20:15
  • 08.04 Sharpening 18:43
  • 08.05 Blur 15:30
  • 08.06 B&W 08:41
  • 08.07 Vanishing Point 28:18
9. hluti: Textavinnsla 27 mín.
  • 09.01 Textavinnsla 27:38
10. hluti: Nýjar uppfærslur 4 klst. 26 mín.
  • 10.01 Contextual Task Bar (Hluti 1) 10:13
  • 10.02 Contextual Task Bar (Hluti 2) 06:34
  • 10.03 Remove Tool 22:06
  • 10.04 Generative Fill (Hluti 1) 33:14
  • 10.05 Generative Fill (Hluti 2) 22:37
  • 10.06 Neural Filters 26:21
  • 10.07 Denoise og Dust Removal 09:41
  • 10.08 Adjustment Brush Tool 12:34
  • 10.09 Bullets 03:05
  • 10.10 Selection Brush Tool 19:03
  • 10.11 AI (Gervigreind) 11:49
  • 10.12 Nokkrar Stillingar 11:22
  • 10.13 Uppfærslur Sumar 2025 43:46
  • 10.14 Photoshop Beta Sumar 2025 23:35
  • 10.15 Faglegt Merkjahönnun (Logo) 10:20
11. hluti: Verkefni 4 klst. 15 mín.
  • 11.01 Verkefni: Ferrari 44:14
  • 11.02 Verkefni: Stonehenge 22:52
  • 11.03 Verkefni: Lion King 36:40
  • 11.04 Verkefni: Shark Attack 13:55
  • 11.05 Verkefni: Travel 13:28
  • 11.06 Verkefni: Speglun 15:39
  • 11.07 Verkefni: Afrika 08:42
  • 11.08 Verkefni: TagHeuer 13:11
  • 11.09 Verkefni: Golf 28:03
  • 11.10 Verkefni: Ilmvatnsglas 36:35
  • 11.11 Verkefni: Out in Space 21:59

Adobe Photoshop – Fjarnám

Hefst: 17. Mar '26
Lýkur: 1. Apr '26
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 185.000 kr.

18.376 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Adobe Photoshop – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax og þú vinnur einn á móti kennara (ekki í hópi) og hefur mun lengri tíma til að sinna náminu eða 180 daga. Að sama skapi getur þú líka unnið mun hraðar en í staðar- og fjarnáminu þar sem þú fylgir hópi og námsdagskrá.

Verð: 234.500 kr.

23.160 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Adobe Photoshop – Sjálfsnám

Getur byrjað strax og hefur mun lengri tíma til að vinna í námskeiðinu eða 180 daga. Þú ert með aðgengi að öllu námsefninu og öllum verkefnum en ert ekki með kennara.

Verð: 99.500 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði