Áætlanagerð í Excel

Áætlanamódel fylgir

125.000 kr.

Um námið

Frábær og ný námsleið fyrir þá sem hafa áhuga á að styrkja sig í áætlanagerð. Einstaklega hagnýt og verðmæt sniðmát og leiðbeiningar sem styrkja verkfærakistu þína til lengri tíma. Getur unnið með eigin rekstrarumhverfi, gert þína rekstrar- og fjárfestingaáætlun. Fyrir alla sem vinna við rekstur, fjármál og áætlanagerð.

Þetta námskeið er einkar hagnýtt og leiðir þig í gegnum helstu grundvallaratriði sem góð áætlanagerð þarf að byggja á skref fyrir skref. Þú færði ítarlegt áætlunarmódel í Excel sem þú hleður niður og vinnur með. Excel módelið getur þú notað til að aðlaga að eigin rekstrarmódeli og skjalið getur þú alltaf átt og notað.
Þessi námsleið er fyrir alla sem starfa við fjármál, rekstur og fjárfestingar og hafa ekki sérmenntað sig í slíku, eða vilja rifja upp.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi grunn kunnáttu á Excel. Ef ekki þá mælum við með að fólk taki fyrst námsleiðina Excel grunnur.
Námsleiðin skiptist upp í tvo meginhluta og undirkafla:

1. Áætlanagerð í Excel
  1. Fjárhagsleg afkoma
  2. Lestur og greining ársreikninga
  3. Áætlunargerð
  4. Fjárhagsáætlun
  5. Stofnkostnaður
  6. Fjármögnun
  7. Raunhæft verkefni


2. Gera áætlunarlíkanið þitt
  1. Forsendur og stofnkostnaður
  2. Stofnefnahagur
  3. Tekjuáætlun
  4. Kostnaðaráætlun
  5. Fjármögnun
  6. Rekstrar og fjárhagsáætlun
  7. Leiðréttingar
  8. Efnahagsreikningur
  9. Sjóðstreymi
  10. Áætlun ár 2 og 3
  11. Greiðsluáætlun
 

Áætlanagerð í Excel – Sjálfsnám

Getur byrjað strax og hefur 180 daga til að klára. Framlenging á tíma í boði.

Verð: 125.000 kr.

12.582 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði