Microsoft AI Skills Fest – þér er boðið

31. mars, 2025

NTV – Promennt kynnir úrval af fríum alþjóðlegum námskeiðum í streymi um gervigreind á vegum LLPA (Leading Learning Partner Associtaion) í samstarfi við Microsoft dagana 8. – 15. apríl.

Námskeiðin eru stíluð inn á mismunandi hópa svo sem stjórnendur, sérfræðinga og svo alla áhugasama um notkun gervigreindar í lífi og starfi. Fyrir þá sem eru komnir lengra þá eru mjög áhugaverð námskeið tengt Copilot innleiðingu og notkun Copilot í Azure umhverfi.

Um er að ræða mörg og mismunandi námskeið í boði á tímabilinu 8.-15. Apríl, allt frá 60 mínútna námskeiðum upp í mun lengri.

Dæmi um nokkur mjög áhugaverð námskeið (á ensku):

Microsoft AI Skills Fest: Unlock the Power of AI!   

Microsoft AI Skills Fest: Use AI for everyday tasks

M365 Copilot Adoption with Business Objective Focus – Basic           

M365 Copilot Adoption with Business Objective Focus – Intermediate

Azure GenAI – Develop Custom Copilots with Azure AI Foundry

Build agent experiences with Copilot Studio

Getting Started with AI Agents in GitHub Copilot

Hér finnur þú úrvalið: https://thellpa.com/aiskillsfest/

NTV Promennt er partner í LLPA (Leading Learner Partner Association) sem er með samstarfsaðila í 55 löndum.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði