Fortinet námskeið

795.000 kr.

Um námið

Fortinet-námið er hagnýtt nám fyrir þá sem vilja byggja upp þekkingu og færni í rekstri, stjórnun og öryggi Fortinet-umhverfa.

Í náminu er farið frá uppsetningu og daglegum rekstri FortiGate-eldveggja yfir í miðlæga stjórnun með FortiManager og greiningu, vöktun og skýrslugerð með FortiAnalyzer. Áhersla er lögð á verklega nálgun þar sem þátttakendur vinna með raunhæf verkefni og aðstæður sem endurspegla daglegan rekstur fyrirtækjaneta.

Þátttakendur öðlast þannig bæði skilning á því hvernig Fortinet-lausnir eru settar upp og reknar og hvers vegna ákveðnar lausnir og verklag eru valin.

  • Kerfis- og netstjórum.
  • Tæknifólki í þjónustuborði eða rekstri.
  • Öryggissérfræðingum.
  • Starfsfólki í SOC- og NOC-teymum.
  • Ráðgjöfum og hönnuðum netlausna.
  • Þjónustuaðilum sem bera ábyrgð á rekstri Fortinet-umhverfa.
  • Nemendum sem vilja byggja upp starfsferil í netrekstri og netöryggi.
  • Þeim sem stefna á Fortinet NSE 4 próf eða frekari Fortinet-vottanir.
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
  • Geta sett upp og rekið FortiGate-eldveggi á öruggan og skilvirkan hátt.
  • Kunna að vinna með eldveggjareglur, NAT, VLAN, leiðarstýringu og VPN-tengingar.
  • Geta unnið með notendauðkenningu, aðgangsstýringu og öryggisprófíla.
  • Geta greint algeng net- og öryggisvandamál og unnið markvisst að lausn þeirra.
  • Geta stjórnað mörgum FortiGate-tækjum miðlægt með FortiManager.
  • Geta safnað, leitað í og greint logga og öryggisatvik með FortiAnalyzer.
  • Geta útbúið skýrslur sem nýtast við rekstur, öryggiseftirlit og ákvarðanatöku.
Helstu atriði sem verður farið yfir:
  • Uppsetning og rekstur FortiGate.
  • Eldveggjareglur, NAT og stýring samskipta milli neta.
  • Leiðarstýring, VLAN og grunnuppbygging netkerfa.
  • IPsec VPN-tengingar.
  • Notendauðkenning og aðgangsstýring.
  • Öryggisprófílar og skráning atburða.
  • Kerfisbundin bilanagreining og greining á rót vandamála.
  • Miðlæg stjórnun Fortinet-umhverfa með FortiManager.
  • ADOM, Policy & Objects og policy packages.
  • Provisioning templates, breytingastjórnun og útgáfustýring.
  • Loggasöfnun og greining með FortiAnalyzer.
  • FortiView, events, alerts og incident management.
  • Gerð og sjálfvirkni skýrslna.
  • Bestu starfsvenjur við rekstur og bilanagreiningu Fortinet-umhverfa.
Þessi námsleið veitir viðurkenningu svo fremi sem nemendur standist frammistöðumat

Fortinet námskeið – Kvöldnám

Hefst: 8. Oct '26
Lýkur: 3. Dec '26
Kennt þriðjudaga og fimmtudaga frá kl 17:30-21:00 og valda laugardaga.

Verð: 795.000 kr.

76.668 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Fortinet námskeið – Fjarnám

Hefst: 8. Oct '26
Lýkur: 3. Dec '26

Verð: 795.000 kr.

76.668 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði